föstudagur, febrúar 23, 2007

Hjálp það er byrjað að snjóa

Stígamót segja þjóðina hafa staðið saman og hafnað kláminu. Er þetta ekki full langt gengið? Ég meina við vitum ekki hvort að þetta fólk hafi ætlað að gera nokkuð meira en að tala saman um markaðssetningu á heimsmælikvarða. Það er bara bissnes og það hefði komið gjaldeyrir inní landið sem að er ekkert nema gott. Einnig hefði þetta fólk kannski jafnvel haft góð áhrif á ferðamannastrum til Íslands hver veit. Ekki miskilja mig ég er ekki fylgjandi þessari klámvæðingu. Segjum að vopnaframleiðendur mundu vilja halda ráðstefnu á Íslandi og aðalræðumaðurinn væri Georg Bush ekki get ég ýmindað mér að það yrði stoppað. Því Georg er jú vinur Davíðs. Eða ef greeanpeace mundi vilja halda málþing á Íslandi hvað mundum við gera.
Hver ræður hver má halda ráðstefnur/málþing eða einhverskonar fundi á Íslandi?

Dönum ráðlagt að halda sig heima við vegna ófærðar. Svona svona þetta er það sem við köllum smá fjúk heima á íslandi. Ekkert alvarlegt bara um að gera að klæða sig vel og keyra varlega.
Sigginn hjólaði meira að segja í skólan í gær og í dag. Ég setti bara plóginn framan á hjólið og ruddi leiðinna. Nei nei en það er svo skrýtið að danirnir nota bara sóparana til að ryðja snjóinn. Sóparinn gerir reyndar lítið gagn því að það myndast bara klaki undir sópinum sem að snýst á alveg ógnarhraða. Danir eru bara ekki vanir að sjá svona mikinn snjó.

Jæja nóg i bili ég ætla að vona að þið hafið eitthvað að segja um þessar tvær fréttir hér að ofan. Því allir hafa skoðun á þessum tveim fréttum.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hehehe, thad er nú bara allt lokad hér í århus, enginn leikskóli hjá krílunum og enginn skóli hjá mömmunni:) öll keyrsla sem ekki er lífsnaudsynleg er "bönnud" ed allaveganna ekki rádlögd. Allt útaf smá snjó, nú er skondid ad vera íslendingur í DK