Þá er hann Heimir þór búinn að kveðja okkur, mig tekur það sárt að hafa fylgt honum þessi síðustu spor. Mér finnst bara eins og að það hafi verið í gær að við vorum að villingast uppí Breiðholti. Minningarnar streyma fram í huga minn á þessari stundu. En það er nú bara eitt og annað sem að maður ræður ekki við í þessum heimi. Heimir þór fæddist þann 27. septemper á því herrans ári 1980. Lengst af bjó hann í Keilufelli 15 þar bjó hann til 23 ára aldurs. Hann lauk smíðanámi 1999. Við fjölskyldan vorum það heppin í sumar að fá að njóta nærveru hans. Hann gisti hjá okkur þegar að hann var á milli íbúða börnin hændust að honum. Og var hann orðin einn af þeim sem að Jakob leit á sem vin sinn.
En hann á kærustu á Íslandi sem að honum langar að vera hjá sem að maður er með skilning á. Heimir flýgur til Íslands núna klukkan 12. Þín verður sárt saknað en ég veit að þú kemur aftur næsta sumar og þá með hana Maríu og þá kannski verðuru lengur hérna í DK.
laugardagur, febrúar 10, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Kæri Siggi
Mér brá heldur betur þegar að ég birjaði að lesa, en ég róaðist þegar lengra sem ég las. ég hélt að Heimir hefði hreinleg dáið.En mér letti þegar að ég las að hann hefði bara yfirgefið Danmörk en ekki lífið sjálft. Lengi lifi Heimir
Ath. stafsetningarvilla í síðustu færslu, á að vera byrjaði en ekki birjaði
Damn Siggi... Ég var komin með brisið í buxurnar við að lesa þetta.. En gott að vita að drengurinn er við hestaheilsu og bara á leiðinni heim :) Annars bið að heilsa þér og þínum.. Les bloggið þitt alltaf af og til ;)
Skrifa ummæli