Tuttugu og átta mans hafa lesið þessa síðu á síðasta sólahring. Og geri ég ráð fyrir að allir séu sammála um síðast blogg. En væru þið ekki til í að kvitta annað slagið svo að maður sjái nú að maður sé ekki að blogga fyrir blinda. Að blogga er bara eins og að tala við fólk ef það talar ekki á móti þá missir maður móðin og talar sjaldnar við það.
En hvað um það ég hef smá áhyggur af því hvað Gunnhildur er að kenna drengnum mínum þegar að ég er ekki heima. Ég reyni þegar að ég geta að spila við hann fótbolta,fara í sjóræningjaleiki og ýmislegt sem að strákum á að finnast skemmtilegt. Málið er bara það, þegar að ég kom heim á mánudaginn að mig minnir þá var hann alveg óður í að fá mig inní herbergi. Hélt ég nú að við værum að fara að spila fótbolta því svefnherbergið er heimavöllurinn okkar. En nei hann vildi sýna mér dans sem að mamma hans var að kenna hinum (að ég geri ráð fyrir). Hann kveikir á ponykastalanum hennar Friðriku sem að spilar svona lag og byrjar svo að dilla rasinum og segir "pabbi þú líka". Ég var fljótur að drag fyrir alla glugga í herberginu loka fram og dilla mér aðeins en þegar að lagið var búið. Þá sagði ég honum að strákar dönsuðu ekki undir neinum kringustæðum allveg sama hvað lægi við maður dansar ekki. Ég vildi að einhver hefði kennt mér þessa lexíu þegar að ég var tveggja. Það hefði sparað mér alveg gríðalega mikla skömm. Já skömm og grín í minn garð því maður á bara ekki að dansa sama hvað maður heldur að maður sé góður dansari. Og ef að þú ert strákur og heldur að þú sért góður dansari þá mæli ég eindregið með að þú hættir að drekka þetta áfengi áður heldur en að þú kallar yfir þig þessa skömm. Það skiptir ekki neinu máli hvað það líður langur tíma síðan að þú dansaðir síðast það muna allir eftir því.
Jæja átakið hjá mér gengur ágætlega er komin yfir 171 í bekkpressu sem að verður bara að teljast mjög gott. Því ég er svo ný byrjaður að lyfta og ég ætla mér að fara uppí tvöhundruð ekki spurning og það fyrir mai. Ég veit að þetta eru háleit markmið en ég er kominn uppí 171 og það í bekkpressu sem að hefur aldrei verið mín stekasta grein. Ef að ég æfi eins og múkki þá tekst mér þetta mér skal takast þetta sérstaklega því ég er búinn að skrifa þetta hér inn. En 171 lbs eru 78 kilo og 200lbs eru 90,91kg. Það er bara miklu meira gaman að tala í lbs frekar en kiloum ef þú ert að spá í að fara að tala í lbs þá er heimasíða sem léttir þetta töluvert fyrir þig hún er hérna.
Ekki meira í bili nema hvað að fyrir ykkur sem að hafið áhuga þá er Eiríkur Steinn búin að skila inn masters verkefninu sínu ekkert smá duglegur.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
7 ummæli:
Shitturinn hvað ég á bágt með mig núna Siggi (sbr. dans innleggið og hvað strákar "eiga að gera") en mín komment enda einhvernveginn bara alltaf í naggi....svooo ég bið bara að heilsa ykkur þarna fyrir sunnan (suð-austan??) :)
P.s Gunnhildur hefur annars alltaf verið góð að dansa svo ég lái henni ekki að taka nokkur spor með syninum.
Kv. María
Hæ ég vildi bara setja hérna smá comment, af því að ég er ein af þeim fjölmörgu sem lesa bloggið þitt en er ekki blind. Vildi bara að þú visir það. En á meðan ég var að lesa það í þetta skiptið hljómaði lítið lag í hausnum mínum. Textinn var einhvernveginn á þessa leið..."Hann er með lítið typpi og ekki öruggur um kynhneigð sina lalalala..."
Nú hvers vegna?
Í fyrsta lagi vegna þess að þú bannaðir blessuðu barninu að tjá sig í dansi, það finnst mér ljótt af þér. Svo er líka bara töff að dansa.
Í öðru lagi þá sagðirðu frá því ÞRISVAR sinnum að þú tækir 171kg í bekk. Sem BTW ég trúi nú ekki fyrr en ég sé það sjálf.
Nú kann ég ekki fleiri lög, svo það verða líklega bara þessi tvö. En ég bið rosalega vel að heilsa öllum dansdrottningunum á heimilinu ........og þér líka, litla veika veika sál.
ÞAð er greinilegt að hún Heiðrún lesblinda vinkona mín hefur ekki lesið allt bloggið því að hvergi kemur kgs fyrir aftan 171. En ég er ánægður að hún lesi bloggið hjá mér bið að heilsa Snúlla.(Ég veit hver skírir barnið sitt Snúlla) en hann hefur afsökun hanner utan af landi eins og Heiðrún
kvitt frá mér og endilega hentu inn mynd af þér að hnykkla biceps-ana :)
Reg
hæhæ, kíki alltaf ödru hvoru, gaman ad frétta af ykkur tharna í köben, finnst nú ad thid ættud einhvertíma ad kíkja á okkur jódana. kv. magga og co. ath. mailfangid mitt er 2004156@stud.aarch.dk veit ad gunnhildur er med gamla og vil gjarna fá póst frá henni
ég les alltaf!!
bara að láta vita..
en bíddu bíddu.. bara í síðustu viku varstu eiginlega ekkert búinn að hnykla?? svo núna ertu kominn á fullt.. hvað á það að þýða??
kv, Nanna G
Kvitt
Skrifa ummæli