
Ég er sjokkeraður með það að hæstiréttur er byrjaður að milda dóma yfir kynferðisafbrotamönnum sem sannað þykir að hafi brotið af sér. Mikið hefur verið gert úr því að myndir af þessum dómurum sem að milduðu dóminn eða allt svo þeir, Gunnlaugur Claessen, Hrafn Bragason, Markús Sigurbjörnsson, Árni Kolbeinsson og Garðar Gíslason. Þessir menn milduðu dóm yfir fimmtugum kalrmanni sem að misnotaði fimm stúlkubörn. Hvað ef að þessi stúlkur sem að um er rætt væru dætur eða barnabörn þessra manna. Mundi dæmið snúa öðruvísi. Veit reyndar að þeir væru vanhæfir en samt sem áður er vert að kanna þetta aðeins. Erum við vikilega að samþykkja svona dóma? Sem samfélag ættum við að rísa uppá afturfæturnar og henda í ein mótmæli jafnvel að biðja einhver eggjabú að leggja mótmælunum lið. Þarna er verið að eyðileggja fimm einstaklinga og finnst mér að ætti að dæma þennan blessaða mann eins og að hann hafi framið fimm morð. En sönnunarbyrðin er erfið og fimm ára stúlkur ekki áreiðanleg vitni hugsar einhver en að er bara bölvað kjaftæði. Börn á þessum aldri eru svo saklaus að þau segja bara sannleikan. Ég er alveg orðin brjálaður hérna fyrir framan skjáinn. Eitt veit ég þó hvað mundi gerast ef að þetta væri eitthvert barn sem að mér væri nákomið.
1 ummæli:
Guð hvað ég er sammála þér núna. Stundum er maður bara næstum því fylgjandi dauðadómum.
Heiðrún
Skrifa ummæli