

Átakið
Varnaliðið
Nú er varnaliðið farið og allt í veseni varðandi hvað eigi að gera við þetta landsvæði og þær 300 hundruð byggingar sem að eru þar. En ekki örvænta ég er með margar hugmyndir og ætla ég að vona að þegar Árni Sigfússon les þetta að hann verði í sambandi við mig. Ekki á að þurfa að taka það fram að ekki má nota þessar hugmyndir nema að borga mér höfundalaun.Hugmynd 1
HVernig væri að hætta við að byggja hátækni sjúkrahús í Reykjavík og stækka bara og beturumbæta það sem að kanarnir skildu eftir. Ef að það yrði gert þá væri grundvöllur fyrir að færa reykjarvíkurflugvöll til Kef. Því ein af rökum fyrir því að færa ekki flugvöllin eru þau að hann verður að vera í nálægð við sjúkrahús. Setja íbúðarhúsnæðin sem að eru þarna á opin markað því fólk er alveg vilt í að kaupa húsnæði á Suðurnesjunum. Segir Haffi. Einnig er hægt að brjóta niður þau hús sem að eru ekki nothæf og selja lóðirnar undir nýbyggingar. Því ég held að það sé næg eftirspurn eftir lóðum þar sem að er öll þjónusta fyrir.
Hugmynd 2
Girða Vestmannaeyjar af og flytja alla Vestmanneyinga á svæðið og breyta Vestmannaeyjum í fangelsi. Svo til að Vestmanneyjingum finnist þeir vera á eyju þá verður hliðinu lokað svo að þeim líði eins og það sé ófært til eyja eða að Herjólfur sé í slip.
Hugmynd 3
Var með þessa hugmynd í kollinum áðan en hæun er farinn þannig að ég kannski hendi henni inn á morgunn. En endilega ef að þið hafið hugmynd þarf að vera góð skrifið hana þá inn á commentið.
Fréttir
Annars er allt í stuði hér það snjóar og er kalt en þá kenur sér vel að eiga föðurland úr kanínuull sem að mamma og Siggi gáfu okkur. Og það eiga allir einn stakk.Það er frekar erfitt að hjóla í vinnuna vegna kulda, og þegar að ég loksins kem í vinnuna þá er mér búið að vera svo kalt svo lengi að mér er bara orðið hlýtt í kuldanum. Spurning um eitthvert stig ofkælingar.
Friðrika fékk bréf frá grunnskólanum sem að hún ætlar að fara í og henni tilkynt það að það væri þeirra heiður að fá hana í skólan eftir sumarið. Haldiði að hún hafi verið montinn að fá bréf frá skólanum?
Jakob er hættur að leggja sig á leikskólanum þess í stað kemur hann heim leggst fyrir framan Disney channel og tekur smá lúr. Erum að reyna að koma í veg fyrir þetta og það tókst í kvöld bara vonandi að hann sofi hrikalega vel í alla nótt.
Atvinnuauglýsin
Ein smá auglýsing veit einhver um smiði sem að hafa áhuga að vinna í DK þeim yrði reddað húsnæði fyrir sangjarnan pening og fengju mjög góð laun. Eina skilyrðið er að þeir þurfa að geta unnið.
5 ummæli:
Ó men! ég sem er að fara í klippingu á morgun!!
djók
Hahaha. Góður Vigdís....
Djö... líst mér vel á þig Siggi að skella þér í ræktina. Þú verður bara að passa að skyggja ekki á tilvonandi brúðhjón þar sem þau bæði eru komin í gírinn og farinn að reynda vera aðeins flott(ari). Kallinn á fullu í bootcamp og drifkarfturinn svo mikill að hann á það til að æla eftir tímana. og frúin komin í fimleika já þú heyrðir rétt fimleika hjá Gerplu þar sem mín fór í heljarstökk og flikk í fyrsta skiptið á ævinni.
Þannig þú kannski tekur tillit til þess svo við fáum nú ekki sjokk þegur þú kemur agalega flottur og eina úrræðið hjá okkur væru lýtaaðgerð, silikon í rass og brjóst og fitusog (einhversstaðar).
Engar áhyggjur Linda øeg mun ekki skyggja á ykkur enda ekki nægilega stór til ad skyggja á eitt né neitt.
Langaði bara að segja að mér finnast báðar humyndirnar þínar fyrir varnarliðssvæðið það góðar, að ég allavega treysti mér ekki til að velja á milli.
Kv. Heiðrún
Skrifa ummæli