fimmtudagur, janúar 25, 2007

Skaðabótamál

Eitt stykki skaðabótamálá hendur ríkinu. Baugur sigrar í hæstarétti og get ég ekki annað sagt en að ég sé ánægður með að þessi skrípaleikur sá lokið en spyr mig jafnframt hvort að efnahagsbrotadeild lögreglunar sé óhæf. Finnst reyndar að það verði að komast að því hver var drifkrafturinn í þessu máli varða að Jón Ásgeir borgaði ekki einhverja skatta af tveim bílum sem að hann flutti inn. Eða býr meira að baki s.s gremja Davíðs í garð Baugs feðga?

Er raunhæft að íslenskaríkið þurfi að borga skaðabætur uppá mörg hundruð miljónir. Því að ég held og veit að það er margt hægt að týna til því skaðinn sem að Baugur varð fyrir vegna málaferla og ásakana getur hlupið á mörg hundruð milj.


Að öllu léttara hjali síðasti vinnudagurinn var í dag og fyrsti skóladagurinn er á morgunn, eftir að hafa verið að vinna í Janúar. Þá er ég mun ákveðnari að standa mig vel í skólaum og er hæst ánægður með að hafa drifið mig aftur í skóla. Það er alltaf gaman að smíða en sé mig ekki fyrir mér vera smíðandi svona um fimmtugt.

Annars er allt við það sama ekkert nýtt að frétta Gunnhildur bara alltaf annað slagið að vinna á kaffihúsinu. Og krakkarnir á leikskólanum.

Vonandi kemur eitthvað ótrúlega skemmtilegt fyrir mig í skólanum á morgunm sem að ég get sagt ykkur frá

Engin ummæli: