Þegar að maður heldur að fólk getur ekki farið hærra í virðingastiganum hjá manni þá kemur það manni bara á óvart og fer hærra en hæstu hæðir.
Þannig er mál með vexti að Linda frænka kom í heimsókn í gær og við vorum bara að kjafta og þá kom hún með sögu sem að ég er enn gapandi yfir.
Ef að þið viljið fá söguna í æð bjóðið þá bara Lindu í kaffi.
En þá að alvarlegri máli hjólinu mínu var stolið í nótt og döfull var ég brjálaður í morgun þegar að ég ætlaði að fara í skólan. Ég vona að þessi einstaklingur fái Gyllinæð að verstu hugsanlega stfni sem að til er. Sá verður nú samt svekktur því að gírarnir virka bara stundum og keðjan er alltaf að detta af. Ég meina ef að þú ætlar að ræna hjóli rændu þá einhverju flottu ekki einhverjui 1000dkr hjóli úr Bilka. Það er bara vandamál hér á bakkanum að það er eitthvað fífl hérna sem að stelur öllu steini léttara. En anda inn og anda út þetta er ekki þess virði að æsa sig upp.
Það var gaman að fara í skólan og djö hlakkar mig til að fara á þriggja vikna námskeið í Autocad. (þetta er ekki kaldhæðni)
Einnig verð ég að þakka honum Tryggva pabba hennar Vigdísar. Fyrir að hafa komið með punga,harðfisk og hákarl. Einnig langar mig að kyssa Lindu Rós systir hennar Gunnhildar haldiði að þessi elska hafi ekki verið að gefa mér aðgan að tónlist.is. Linda takk. Jæja best að fara að hlusta á tonlist.
föstudagur, janúar 26, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
5 ummæli:
nei láttu ekki svona, komdu nú med söguna ...
Það er bannað að gera svona. Þú verður þá allavega að gefa upp símanr. hjá þessari Lindu eða eitthvað.
Annars ef ég næ í þennan sem tók hjólið þitt þá skal ég sko rífa í hárið á honum, snúa upp á hendina á honum, berja hann í magann og gefa honum gott hnéspark í andlitið og sparka svo í hann liggjandi þangað til hann fer að æla blóði. Eða þú veist ég skal allavega taka í hann.
Kv. Heiðrún
Hæ öll, til hamingju með prinsessuna, svona síðbúin afmæliskveðja:-) alltaf gaman að lesa hjá ykkur, enda Siggi rosa duglegur að skrifa og fylgist greinilega vel með þjóðfélagsmálunum hér á klakanum, enda allt að fara til fjandans hér, jhi...Siggi kynntu þér leikskóla og dagvistarmál hér á Selfossi...allt í rugli og dýrast í heimi......gæti kannski látið kallinn bara vinna í DK og ég farið í framhaldsnám:-)
Bið að heilsa öllum.... líka fólkinu í næsta gangi:-)
bæ,bæ
Ekki slæm hugmynd Ástrós ekki slæm hugmynd
Hæ Siggi og fjölskylda. Gaman að heyra frá ykkur á síðunni okkar. Leiðilegt með hjólið þitt, við erum nú með eitt stykki frá þér, en það er á Fróni. Vonandi gengur ykkur öllum vel í skólanum og leikskólanum og öllu sem þið gerið í Danaveldi.
Erum á flugvellinum í Auckland, stoppum í Sydney í hádegismat og svo til Bankgkok. Heyrumst!
Kv. Peter og Linda
Skrifa ummæli