sunnudagur, janúar 28, 2007

Hver er með gat á hausnum

Í gær var dagurinn bara í það róleasta Gunnhildur fór klukkan 10 að vinna og við höngsuðum á náttfötunum langt fram eftir. Það snjóaði smá í gær en ekkert sem heitir. Friðrika var ekki í neinu stuði til að fara út vildi bara vera inni umdir sæng. Persónulega hafði ég ekkert á móti því. Þegar að klukkan var orðin þrjú þá ákváðum við að fara að heimsækja Gunnhildi á kaffihúsið sem að er lengst í burtu á Østerbrø eða um 20 mín í strætó. Jakob kom sér þægilega fyrir í strætóinum og gerð sér lítið fyrir og sofnaði og svaf alla leiðina og megnið af tímanum sem við vorum inná kaffihúsinu. Friðrika fékk súkkulaðiköku með ís og ískalda mjólk á Kaffihúsinu. Og var svona frekar glöð með það ég fékk einverja klúbbsamloku sem að vara bara mjög góð. Svo var kominn tími til að fara heim. Leiðin gekk bara vel og Jakob sofnaði næstum því aftur í strætóinum. Veit ekki hvað þetta er við strætóa sem að hefur þessi áhrif á hann.
Þegar heim var komið var börnunum skellt í önnur föt og farið með þau yfir til Jóa því þar ætluðu þau að vera meðan að við fórum í bíó á The Prestige sem að var bara góð ræma að mínu mati. En Gunnhildur varð fyrir því á óláni að fatta myndina eftir einungis sjö mínútut skil ekki afhverju hún er að fara í bíó hún fattar yfirleitt plottið. Þannig að hún þurfti að sitja í tvo tíma búin að sjá í gegnum alllt saman og spyr mig svo "viltu að ég segi þér hvernig að hún endar?" Uhhhh nei ég er þannig gerður að ég horfi bara á mínútu fyrir mínútu og er bara sáttur við það. En hún gaf mér einn staf og sá stafur var T ég ætla ekki að segja hvað hann ste,ndur fyrir en þið fattið það þegar að þið farið á myndina.

En í dag átti að vera svona fjölskyldudagur og jú við erum búin að vera saman en bara uppá slysó. Því að Jakob fékk gat á höfuðið ekkert kannski alvarlegt ef að þú hefur séð marga fá gat á höfuðið. En okkur fannst þetta alveg vera slatti maður sá bara holu inn í höfuðið. Sem betur fer var þetta nú það lítið að þetta var bara límt saman en ekki sumað. Jakob stóð sig eins og hetja. En svona getur gerst þegar að maður er að hoppa í rúminu hann bara hreint og beint flaug á ofnin kall anginn. Hann er reyndar allur hin hressasti.

Horfðum á leikinn uppá bar er eitthvað að segja um þetta? Svar: Nei

Engin ummæli: