Fyrirsögnní Metro í dag er svohljóðandi "Íslendingar eru næstir" Einnig sá ég titil á grein í Urban sem að var á þessa leið "Danir hafa aldrei átt eins mikin möguleika á að komast í úrslit eins og nú". Reyndar í báðum þessara greina er vitnað í landsliðsþjálfara Dana og segir hann að við ´seum einungis sýnd veiði en ekki gefin og að þetta verði 50/50 leikur. Sem að ég held að sé rétt hjá honum þar að segja ef að við spilum eins og heild. Áfram Ísland.
Ég verð alveg gríðalega ánægður ef að við vinnum Dani því ég er ekki að nenna að vera með 30 montnum d0num á miðvikudaginn í skólanum. Einnig hvað haldið þið að það hafi verið gert nú á Sunnudagsnóttina það keyrði einhver inní verslun Illums sem að við eigum. Mér finnst þetta nú jafngilda árás á sendiráðið okkar. Mér er bara ekki lengur sama um að labba einn um götur borgarinnar lengur því ekki hjóla ég þar sem að er búið að stela hjólinu mínu. Þetta væri allt annað ef að ég væri á hjólinu þá væri ég öruggur.
Hvað sem að því líður þá er búið að bjóða mér í partí 19. mars já enginn smá fyrirvari. Eitt sinn sagði Vigdís við mig að Danir droppuðu ekkert við, það þarf allt að vera planað og ég held að Rass hafi alveg sett standardin fyrir það.
mánudagur, janúar 29, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli