þriðjudagur, janúar 30, 2007

Ísland-Danmörk

Fjölmiðlar hér í Dk eru komnir aðeins niður á jörðina og búast við hörku leik. Per Leegaard verður ekki með og held ég að það komi okkur vel enda mjög sterkur leikmaður og örvhentua að auki. Óli segist vera betri í ösxlini og allt virðist vera að ganga upp hjá okkur. Danir eru alveg brjálaðir yfir að það eru ekki til miðar á leikinn og að fjölskyldur leikmana fá ekki einu sinni miða. Í fávisku minni hélt ég bara að það yrði ekki byrjað að selja miða á átta liða úrslit syrr en að það væri ljóst hverjir myndu mætast. Svo virðist ekki vera því að þjóðverjar virðast hafa keypt alla miða sem að til eru. Ég gerðist svo kræfur að seja fyrir framan 30 dani "Þið eigið ekki möguleika í okkur" það féll í grýttan jatðveg. Held hreint og beint að ég verði bara veikur á morgunn ef að við töpum. Sem að við gerum ekki þannig að það þarf ekkert að spá í það enda byrjar önnin á þvílíkum krafti að maður má varla vera að því að blikka augunum í tíma. Nú erum við að læra á Autocad reyndar vorum við að nota það síðustu önn líka sen það var svona sjálfskennsla að megninu til. Þá vorum við líka að teikna í tvívídd en nú teiknum við í þrívídd sem að er allt annað og miklu miklu skemmtilegra reyndar er það líka miklu miklu erfiðara. En hey það sem að er hægt að gera í þessu forritai er alveg ótrúlegt. Einnig erum við svo heppinn að vera með gestakennara sem að er búin að vera að vinna á Autocad síðan 83 og einnig þýddi han það yfir á ensku. Og segja mér fróðir menn að hann sé einn fremsti Autocadteiknari í DK. Þannig að hann hefur allt svo er hann líka svo helvíti skemmtilegur enda Írskur.

Fyrir þá sem að ekki vita hvað Autocad er þá er það teikniforrit sem að 80% af þeim sem að eru að teikna hýbýli nota.

Þá er komið að því ég er að fara að horfa á leikinn uppá bar og hver veit kannski verð ég bara með veikindafrí á morgunn í skólanum

Engin ummæli: