sunnudagur, janúar 21, 2007

Afmælisveislan

Afmælið er yfirstaðið og tókst með afbrigðum vel. Friðrika og Hrannar voru í skýjunum með veisluna og ég held að allir aðrir hafi skemmt sér vel. En eitthvað misreiknuðum við okkur með veitingarnar því að það var slatti eftir. Runólfur ákvað reyndar að fórna sér og tók megnið með sér heim enda átti hann von á gestum. Skrýtið hvernig maður er alltaf að hafa áhyggjur að hafa ekki nóg og alltaf að bæta við einum og einum rétti. Svo þegar að upp er staðið þá er of mikið. Arnar reyndar minntist eitthvað á að þetta væri of mikip en ekkert mark var tekið á honum sem að við hefðum kannski átt að gera. Fyrirgefðu Arnar. Ég var búinn að lofa að henda inn myndum hérna úr afmælinu og mun ég gera það seinna í dag.

P'osthólfið hjá mér hefur bara fyllst að óskum um góðan bata vegna hnésins og er ég gríðalega þakklátur. En það er ekki eins og ég sé að missa hnéið . Eins og margir halda, ég er bara eitthvað bólginn og þessi elskulegi læknir sem að ég fór til gaf mér gigtartöflur. Sem reyndar ég held að hafi verið eitt af þessum læknamistökum. Held bara að það sé vatn inná liðnu eða eitthvað vegna þess að það er svo mikill þrýstingur á hnéinu.
Ég get ekki beðið efti að Vigdís eða Embla verða búnar með dýralækninn því þá fæ ég bara sjúkdómsgreiningu hjá þeim. Því eins og Bloodhoundgang sagði það You and me aint nothing but mammals.

Einnig hérna er linkur fyrir þá sem að leiðist

Einnig er þetta ótrúlegt mana ykkur til að reyna þetta

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já Siggi minn ég held líka að þú eigir bara betur heima hjá dýralækni.
Mmeeeee
Kv Heiðrún

Nafnlaus sagði...

Hæ elskurnar og takk fyrir svakalega veislu. já það er ekki annað hægt að segja að þetta hafi verið ágætis fermingar veisla hehehe...

En bara áfram ÍSLAND;)