sunnudagur, janúar 07, 2007

Fyrir Röggu

Þar sem að Ragnhildur vildi rök fyrir því afhverju ég er fylgjandi stækkun álversins þá copy pastaði ég smá af síðu Alcans fyrir hana. Þar sem að ég held að hún sé ekki búin að kynna sér þetta tiltekna mál.

Tekjur Hafnarfjarðar


Ljóst er að tekjur Hafnarfjarðarbæjar af álverinu myndu aukast verulega ef kæmi til stækkunar. Áætlað er að fasteignagjöld sem rynnu í bæjarsjóð næmu ríflega 500 milljónum króna á ári auk þess sem tekjur bæjarins af hafnargjöldum myndu margfaldast. Beinar heildartekjur bæjarins gætu því legið nærri 800 milljónum króna á ári í stað þeirra 100 milljóna sem nú renna til bæjarins beint frá fyrirtækinu vegna hafnargjalda og ákvæða sérstaks skattasamnings sem er í gildi milli Alcan og ríkisins.

Mun flúormengun aukast?


Með aukinni framleiðslu mun losun flúors aukast, en þó ekki í beinu hlutfalli við aukna framleiðslugetu. Nýjar þurrhreinsistöðvar við kerskála verða af bestu fáanlegu gerð og árangur í núverandi hreinsistöðvum er sífellt að batna. Hreinsigetan nú er að meðaltali um 99,5% og með nýrri tækni og úrbótum er mögulegt að bæta þann árangur. Einnig skal bent á, að losunarmörk fyrir flúo

13 ummæli:

Nafnlaus sagði...

af hverju segirðu að ég hafi ekki kynnt mér þetta þó ég spyrji siggi minn? Þetta er nú stór ákvörðun að taka fyrir okkur Hafnfirðinga og margt mælir með, en annað á móti, eins og gengur og gerist í öllum ákvarðanatökum. Og auðvitað fær mar "jákvæðu" upplýsingarnar í æð í boði heimasíðu Alcan :)
En kíktu á þennan link, það koma ágætis punktar fram þar sem t.d. mæla á móti þessu.http://www.solistraumi.org/archives/92#comments
vona að gunnsið mitt sé orðið hresst :)

SGFJ sagði...

Það er alltaf eitthvað fólk með og á móti öllu. En einhvernvegin virðist alltaf sama fólkið vera á móti. Gaman væri að vita hvaða fólk þetta er sem að er með sól í straumi og hver baggrunnur þeirra er.

Nafnlaus sagði...

Hvernig færðu það út að það er alltaf sama fólkið sem virðist vera á móti? Og á móti hverju þá? Held að þú getir forvitnast um bakgrunn fólks sem er á móti jafnvel og þeirra sem eru með. Spurning um að googla bara?
Annars er almennt talað um, í þessarri umræðu í fjölmiðlum, að skoðanir séu mjög skiptar hjá fólki og algjörlega þverpólítísk afstaða.
Sumir þættir vega þyngra en aðrir í hugum fólks og mun að lokum ráða um hvorum megin fólkið kýs. Það eru jú gild rök hvorum megin, hvernig sem á þetta er litið.
Held að það hafi lítið með gáfnafar fólks að gera hvað það kýs.

SGFJ sagði...

María ég var ekki að tala um gáfnafar fólks og ekki vil ég heldur fara í neinar persónunjósnir um þetta fólk. Sjáðu bara hverjir voru á móti Kárahnjúkum það var fólk sem að hvorgi hafði komið á svæðið eð vissi hvar Kárahnjúkar voru. Einnig eru til svokallaðir atvinnumótmælendur og held ég að íslendingar eigi flesta miðavið höfðatölu. Því alltaf skal það vera sama fólkið sem að er að mótmæla og er í fjölmiðluðum með einhverja leikararæðu. En María engin ástæða að missa út slög útaf þessu.

Nafnlaus sagði...

Ragga hefur ekki kynnt sér málið og ég er að missa slög út af þessu :)

Helduru að við séum að rífast við þig, eða? Bara gaman að taka þátt í smá umræðu um svo stórt málefni sem þetta. Þú komst með svo niðurneglda yfirlýsingu um kosninguna og hvað fólk ætti að kjósa að maður veltir auðvitað vöngum yfir hvað sé svona það helsta sem stendur upp úr hjá þér í að geta tekið afgerandi afstöðu.

p.s Ég nefndi gáfnafar fólks af því að þú talaðir um vitiborið fólk. tómató-tómeitó??

SGFJ sagði...

Rifridli hvarlaði ekki að mér. Þetta eru bara umræður.

Nafnlaus sagði...

Sammála Sigga,
Það eru nefnilega til atvinnumótmælendur. Þeir sem fylla þann flokk manna virðast þrífast best á því að hafa allt á hornum sér og þá gildir einu hvert málefnið er. Auðvitað eru gild rök með og á móti stækkun álvers í Hafnarfirðinum, en það dregur ekki úr þeirri staðreynd að þeir sem hafa hæst í þessari umræðu eru þeir sem virðast ekki hafa neitt við tímann sinn að gera annað en að vera á móti..... bara til að vera á móti..... eins og alltaf.

SGFJ sagði...

Gæti alls ekki orðað þetta betur en Ásgeir Páll

Nafnlaus sagði...

Jú, það eru örugglega til einstaklingar sem geta kallast atvinnumótmælendur. Ég bara veit hins vegar ekki HVAÐA fólk það gæti svo sem verið. Og heldur ekki í sambandi við álversmálið.
Hitt er annað mál að eins og ég hef upplifað alla þessa umræðu er að það er enginn einn hópur fólks eða einstaka aðilar sem bera eitthvað sérstaklega upp úr "á móti". Sól í straumi t.d er hópur fólks úr ólíkum áttum. Þessi tiltekni hópur eru í raun fólk sem hefur komið sér saman og hafa gert opinbert sína afstöðu fyrir hönd margra annarra,í Hafnarfirði sem og annars staðar. S.s talsmenn stærri hóps.

Kannski eigið þið við einhverja Vinstri græna pólítíkusa eða aðra á þingi sem sjá hér góðan vettvang til að koma flokksskoðunum sínum á framfæri, en það sem mér hefur þótt áberandi sem Hafnfirðingur, er að almenningur er mjög virkur í umræðunni. Þetta varðar okkur öll, og sérstaklega í Hafnarfirði, og ef hluti fólks er á móti, þá EIGA þeir að láta í sér heyra.

SGFJ sagði...

María talaðu við t.d Leikara og sólk sem að er á styrkjum frá ríkinu s.s einhverjum listamannalaunum og þess háttar og ég skal veðja að minnst 90% af þeim eru á móti. Þetta er t.d fólkið sem að er alltaf á móti öllu og það fær gríðalega athygli út á það.

Nafnlaus sagði...

Siggi, þú talar eins og margir stjórnarliðar. Beitir hérna smjörklípuaðferðinni þegar öll málefnaleg rök eru uppurin.
Málið er nefnilega að taka gagnrýna afstöðu, ekki endilega að vera bara "á móti öllu". Þar sem þetta er mjög stórt mál þá þykir mér ekkert skrýtið að fólk skiptist í fylkingar, það er ekki eins og verið sé að hækka verðið á burðarpokum í Bónus !!!!!

SGFJ sagði...

Einar minn smjörklípuaðferðinn geri ég ráð fyrir að þú meinir að ég sé ekki búinn að skoða allar hliðar. Sem að er ekki rétt ég er búin að skoða báðar hliðir á málinu. Og já ég er með stækkun. Samt sem áður er ég búin að lesa þessa síðu Sóls í strumi og það er margt sem að þau hafa til síns máls. En ekki finnst mér það vera nægjanlegt. En hvað segirðu er verið að fara að hækka verðið á pokunum í Bónus. Ég er fylgjandi því mundi helst vilja borga 100kr fyrir pokan. Og hér koma rökin Einar allur ágóði af pokunum rennur til Barnaspítala hringsins sem að ég er meira en til í að styrkja.

Nafnlaus sagði...

Auðvitað er fórnarkostnaður af stækkun álversins í Straumsvík. Það er líka fórnarkostnaður af byggingu álvers í Helguvík eða Húsavík. Mikill meirihluti íbúa þessara byggðarlaga er samþykkur framkvæmdum. Hvers vegna? Ég held að það sé vegna þess að þetta fólk er í áþreifanlegri snertingu við mikilvægi þess að allir hafi vinnu og að tekjur til sveitarfélagsins séu með viðunandi hætti fyrir gang þess. Hversu mörg störf fást við stækkun álversins? Hversu mörg störf glatast ef það verður lagt niður? Hafnarfjarðarbær nýtur vaxtar og virðingar, en hvernig væri staðan ef álvers hefði ekki notið við í öll þessi ár? Hefði bærinn hugsanlega orðið af tekjum og væri ekki það bæjarfélag sem við þekkjum í dag. Hefði Hafnarfjörður kannski sameinast Kópavogi í seinustu sveitarstjórnarkosningum??? Nei ég er að grínast, en "pointið" er samt: Hugsum aðeins til þess hvaðan við komum.