sunnudagur, janúar 07, 2007

Eftir smá pásu





Jæja þá er tölvan kominn í lag búin að vera í einverju ólagi eitthvert vírusvesen. Eiríkur Örn fær fjöður í hattin fyrir að hafa lagað hana og er hatturinn hans að verða alskreyttur fjöðrum.

Gunnhildur búin að liggja í veikindum og engum smá veikindum. Gunnhildur verður mjög sjaldan veik en þegar að þetta hellist yfir hana þá verður hún rosalega veik. En hún fær aldrei hita verður bara slöpp en aldrei neinn hiti skrýtið. En samt fór þetta hörkutól sem að ég á fyrir konu með krakkana á leikskólan. Því ég er byrjaður að vinna fékk vinnu við smíðar hjá einhverjum íslendingi við að breyta einhverju iðnaðarhúsnæði í lúxusíbúðir. Er í fríi allan Janúar og sló því bara til. Einnig er það ekki slæmt að fá Danskar krónur beint í hendurnar. En ekki þurfa að millifæra íslenska krónu hingað út og tapa stórfé. Jakob er byrjaður á leikskólanum hennar Friðriku og líkar ekkert smá vel. Fyrsta daginn sem að ég fór með hann þá bara sgði hann "Ert þú ekki að fara heim". Sem að ég bara gerði en náði í hann á hádegi.

Friðrika er alveg að deyja úr spenningi fyrir afmælið sitt. Og er búin að skrifa niður óskalista sem saman stendur af t.d Barbie dúkku,fötum fyrir Bellu sem að er dúkkan hennar,náttföt fyrir sig,kanínubangsa,barnaryksugu,barnastrauborð o.s.f.r.v
Friðrika ætlar að halda afmælið sitt með honum Hrannari Inga sem að á afmæli á svipuðum tíma og verður haldið uppá afmælið þann 20. jan. Veit ekki alveg hvað á að gera fyrir hana þann 16. held að ég leyfi henni að ráða hvað er í matin eins og frú Ásta gerir alltaf. Veit ryndar hvað hún biður um það verður Grænmetissúpa. Er eithvað sjúk í Grænmetissúpu þessar vikurnar.

Svo svona til að skerpa á þá vona ég að allir vitibornir Hafnfirðingar kjósi með stækkun álversins. Annað er bara rugl.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

loks nokkrar myndir gaman gaman :)
Af hveru er rugl að kjósa ekki um stækkun álversins, endilega komdu með rök fyrir því.
Kveðja, Ragga
Bið að heilsa kjarnakonunni minni:)

Nafnlaus sagði...

Hæhó,
Ég verð að viðurkenna að mér nú nett við að sjá myndirnar. Ekki vegna þess að Gunnhildur líti neitt illa út, ekki heldur vegna þess að börnin séu neitt nema falleg. Nei minn kæri, það er bara dáldið greinilegt hversu mörgum bjórum þú hefur sturtað ofan í búkinn. Mér fyndist þetta í sjálfu sér allt í lagi, nema fyrir þær sakir að ég fæ ekki neitt. Hmmmmprrrrfffff.... Kveðja frá klakanum sem fljótlega verður innpakkaður í álpappír.