Þá er síðasti dagur þessa árs runnin upp margt mergilegt hefur gerst á þessu ári hjá fjölskyldunni en hæst ber þó fluttningur til DK. Þetta er árið þar sem að krakkarnir þurftu að aðlaga sig nýju samfélagi sem hefur aðra siði og annað tungumál og eru þau búin að standa sig eins og hetjur. Orðin altalandi og meira að segja gengur Friðrika það langt að hún leiðréttir pabba sinn ef að hann er ekki með rétta hreimin eða málfræðin er eitthvað að stríða honum. Jakob talar dönsku allan liðlangan daginn í leikskólanum en það má ekki tala dönsku heima að hans sögn. Sem að er alveg rétt. Ég og Gunnhildur náðum í hann um dagin og eins og flestum foreldrum þá vorum við forvitin um að sjá hvernig hann léki sér. Þannig að við læddums að stofunni þar sem að hann var að leika og læddums í átt að rödd sem að okkur þótti líkleg. Haldiði að Jakob hafi bara ekki verið að gaurast með einum af vini sínum og það allt á dönsku við horfðum á hann í stutta stund eða þangað til að hann tók eftir okkur og þá var eins og að það hafi verið slökkt á einhverjum takka því að um leið skipti hann yfir á hið ylhýra. MAður verður svo stoltur af þeim þegar að maður verður var við hvað þau eru dugleg að tileinka sér nýtt tungumál án nokkurra erfiðleika. Einnig er hún Friðrika byrjuða ða skilja okkur Gunnhildi þegar að við erum að tala ensku notum enskuna þegar að við erum að tala um eitthvað sem að þau mega ekki vita en vitir menn Friðrika er líka byrjuð að skilja það. Það er spurning um að fara að læra ítölsku.
Gunnhildur er að standa sig eins og hetja í tungumálaskólanum og óðum nálgast hún þan merka árangur að næla sér í stúdentspróf sem að verður að teljast góður árangur. Því að þetta er ekki eins og stúdentin er heima skal vi snakke sammen heldur er lagt miklu meira upp úr því að geta talað dönsku eins og dani. En ekki eins og dönskukennari sem að ekki hefur áhuga á danskri tungu. Og ef að allt gengur eftir á hún að geta tekið þetta próf í mai.
Mér tókst að komast í gengum fyrstu önnina í Byggingafræðinni sem að ég er bara mjög sáttur við. En mæer skilst að önnur önn sé töluvert erfiðari. Sem að hlýtur að vera nokkuð rökrétt.
Jæja takk fyrir allt það gamla á árinu sem að er að líða og vonandi að þið hafið það gott í kvöld og ekki gera of mörg áramótaheiti þetta árið.
sunnudagur, desember 31, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla:-). Hafið það sem allra best í dk á nýju ári
Kveðja
Helga
Skrifa ummæli