Jæja þá er Friðrika að fara í svona undirbúningstíma fyrir grunnskólan því jú hún ætlar að byrja í skóla eftir sumarið. Og vá hvað mín er spennt hún er byrjuð að geta talið uppí 30 á dönsku og er nátturulega orðin altalandi í dönsku.
Hún verður í þessum tímum alltaf á þriðjudögum, í kvöld þurfti ekki að segja henni að fara að sofa slíkur er spenningurinn.
Gunnhildur er ennþá slöpp vonandi fer þetta að fara úr henni því þetta á allsekki við hana að vera svona veika.
Sjálfur er ég bbyrjaður að vinna hjá einhverjum Íslending við það að breyta iðnaðarhúsnæði í lúxusíbúðir. Æji þetta er samt bara svona smíðavinna sem að er gott að geta gripið í. Og skemmir ekkert að fá smá danskar krónur. Þessar íbúðir eru á Norrebro og er ég 15 mín að hjóla þetta sem að er ekkert mikið mál nema hvað að það er rigningatíð hér. Og er ég því yfirleit rakur allan daginn (mætti miskilja þetta). En ekki gera það.
Hvað er að frétta af dönum jú hræðilegir atburðir í Søneborg hvað fær menn til að drepa sín eigin afkvæmi þetta er bara ógeðslegt. En gleðifréttir úr Christaniu það er búið að tryggja framtíð hennar. Húrra fyrir því. Einnig þá á að rífa Ungdomhuset sem að allt var vitlaust útaf um daginn og held ég að það verði allt vitlaust aftur. Nema hvað nú komast unglingarnir ekki í flugelda til að henda í lögregluna. Svo voru einhverjir gæjar sem að tóku sig til og sprengdu upp hraðbanka á Norrebro en allt kom fyrir ekki þeir komust ekki að peningunum. En hlerin af bankanum flaug einhverja tíu metra.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli