fimmtudagur, janúar 11, 2007
Vangaveltur um allt sem að skiptir ekki máli
Hvað ætla íslendingar að taka til bragðs varðandi Evrúvisíon því að ef Englendingar ætla að senda Morrisey. Þá held ég að það þýði ekkert að senda einhvern poppara sem að er vinsæll bara vegna fegurðar menn verða eð geta sungið. Þessvegna datt mér í hug að senda Jóhönnu Guðrúnu, þarna undrabarnið ú söngskóla Maríu en ekki þýðir að senda hana eina því að Sigurrós sér um undirspilið og Björk Guðmundsdóttir sér um að dansa. Ekki hugsa þetta til enda bara framkvæma það þýðir ekkert að vera bara með til að vera með manni verður að langa að vinna. Ekkert annað kemur til greina. Allavega verðum við að gera eitthvað frumlegt ef ollur á að takast að vinna þessa keppni svo þegar að okkur tekst að vinna þá ættum við bara að hætta. Og eyða þessum tugi miljóna sem að fara í þetta á éri hverju í eitthvað annað. Því að það man hvort sem enginn eftir þessum keppnum nema nátturulega hommarnir. Þeir hreint og beint elska þessa keppni.
Allavega þá er ég búin að vera að smíða alveg á fullu á danskan mælikvarða. Gunnhildur er ennþá veik en samt fer hún með krakkana á leikskólan, og í þessum töluðu orðum er hún að vinna á kaffihúsi í svona prufu til að kanna hvort að henni líkar þetta. Hún er hörkutól veit reyndar ekki hvaðan hún hefur þetta kannski er ég bara búinn að herða hana svona mikið!
(Veit að ég fæ koment á þessa síðustu setningu)
Þessi vika er búin að einkennast svolitið af setningum sem að ég hélt að ég mundi aldrei heyra frá vinum mínum. Vikan byrjaði á því að Jói sagði "Viltu fá það uppí þig" Þá var hann að tala um vínber. Svo sagði Hjalli við mig á miðvikudaginn "hvert viltu fá það" Þá var hann að tala um útvarpið. Einnig sagði Hjalli við mig "'eg get svo svarið fyrir það að ef að ég væri hommi þá mundi ég reyna við þig". Er byrjaður að forðast Hjalla svolitið og alltaf þegar að hann er nálægt þá snýr aftur hlutinn uppað vegg.
Fyndið hvernig allt er unnip hérna í Dk ég er búin t.d að fá að heyra "hvað ekki vanda þig svona mikið þetta skiptir engu máli það má skeika um 5mm sitthvoru meginn". Þess má geta að ég var að setja sólbekk í.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Hvað ert þú þá ef það eru bara hommar sem horfa á Eurovision og þú eitthvað að ræða þetta þarna misstir þú þó nokkuð mörg mannstig og enginn tattoo þú ert alveg fucked.....
Skrifa ummæli