föstudagur, desember 08, 2006

Stoltir foreldrar.


Fórum á jólaball í leikskólanum hennar Friðriku á miðvikudaginn. Jakob var einnig boðið og skemmti hann sér alveg konunglega í dýnuherberginu við það að gera hoja við hina stóru strákana. Svo þegar að líða fór á skemmtunina þá voru allir beðnir um að fara útúr dýnuherberginu því að nú ætluðu krakkarnir að syngja fyrir okkur. Nema hvað að þegar að hurðin að herberginu opnar þá kemur mín með kórónu sem að var með fjórum kertum á.(batterykertum) Og gekk hún fyrir hópnum sem enginn önnur en Santa Lucia drottning ljósins. Þetta var alveg æði vildi að ég hefði verið með myndavél og það er enginn smá þörf fyrir svoleiðis græju. En koma tímar koma ráð. Langaði bara að uppfæra hæer smá.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já Siggi minn þú verður annað hvort að liggja á bæn um að Jólasveinninn muni eftir þér á jólunum og gefi þér kannski myndavél eða bara að fara og kaupa hana sjálfur :-)
Það vantar fleiri myndir inná vefinn af famelínni.
Vona að þið hafið það gott og hafið notið góssins vel.
Bestu kveðjur frá Ástu Lín og fam.

Nafnlaus sagði...

oh my god... hvað ég vildi að ég hefði séð þetta, fékk bara tár í augun við að lesa þetta. Kannski ágætt að maður var ekki á staðnum hefði örugglega grátið úr mér augun og allir skammast sín ;)
Linda sys

Nafnlaus sagði...

en frábært!! var ekki einhver annar að taka myndir þarna?? ég er nefnilega sjálf orðin ansi góð í að redda mér þannig á svona stundum ;)
knús til allra.. Nanna