Finnst allt þetta mál í kringum þetta mál lykta. Þegar að einstaklingur deyr í vörslu lögreglu þá hlýtur lögreglan að bera einhverja ábyrgð. Kannski ekki alla en einhverja. Ég veit fyrir víst að þegar að menn eru í haldi lögreglu þ.a.s ef að þú ert í handjárnum og getur jafnvel ekki borið fyrir þig höndunum ef að þú skildir t.d detta framm fyrir þig. Þá er ber lögregluþjóninn sem að er að leiða þig út eða situr við hliðina á þér ábyrgð á að þú slasir þig ekki. Því það hlýtur að segja sig sjálft að ef að þú ert frelsissviptur þá ber sá sami og svipti þig frelsinu einhverja ábyrgð.
Þegar að svona óhapp gerist þá á að leysa þá lögregluþjónan sem að handtóku mannin frá störfum á meðan að verið er að rannsaka atburðarásina. Það þýðir ekki að kenna því um að dópneysla hafi orsakað dauðsfallinu en í sömu frétt komi fram að viðurkenndum handtöku aðferðum hafi verið beitt. Man eftir viðtali við Geir Jón yfirlögregluþjón um hvað væru viðurkenndar handtökuafðferðir. Þá sagði hann að lögreglan verður að meta aðstæður hverju sinni. Gott og blessað en þegar að sjö fílhraustir lögregluþjónar eru komnir á bakið á einstakling er þá ekki verið að nota óhóflegt vald. Hvernig fékk ég þessa tölu sjö jú ég þekki mann sem að þekkir til. Og ætla ég að vona að það komi eitthvað meira útúr þessu en sú einfalda skýring að maðurinn hafi verið að dópa.
Einnig hvenar uppgötvar lögreglan að hann er látinn? Strax, fimm mínútum seinna eða tíu mínútum seinna? Allavega voru þeir nógu seinir til að maðurinn hlaut þvílíkan heilaskaða að það þurfti að taka hann úr sambandi.
Finnst að einhver verði að axla einhverja ábyrgð kannski ekki alla en einhverja. Einnig held ég að þó að lögreglan hafi drepið hann þá fáum við aldrei að vita það því það yrði bara þaggað niður.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Hæ elsku fjölskylda, eruð þið til í að senda mér heimilisfangið ykkar, svo ég geti sent jólakort:)
kv, Herdís (hs2198@columbia.edu)
Við erum sammála hérna í 113 SKÍTALYKT........
Elsku Gunnhildur innilega til hamingju með daginn. Vona að dagurinn eigi eftir að verða góður. Við heyrumst seinna í dag.
Kveðja Rakel og co.
engin skítalykt af þessu máli siggi minn ;)
Skrifa ummæli