
Var á leiðinni heim úr skólanum á mánudaginn og var alveg óvenju þyrstur. Ég leita að næstu Tyrkjabúð og hendist inn spyr Tyrkjan hvar hann geymi kælirinn með öllu gosinu í. Þá bendir hann mér á að hann sé á bakvið einhverja snakkkassa. Ég labba upp að kælinum gríp vatn en sé að það kostar 10dkkr vá hugsa ég. Við hliðina á vatninu situr einmanna Carlsberg flaska sem að kostaði bara 7dkkr. Hey hvað ætti ég að gera. Og þetta er spurning dagsins hvað gerði ég.
Verðlaunin eru ekki af verri endanum heldur mun sá sem að getur rétt vera stoltur eigandi að einni heillri danskri klósettrúll. Ég veit hvað þú ert að hugsa hvað er svona merkilegt við eina danska klósettrúlli. Jú ef að þú veist það ekki þá hefurðu ekki prófað ekta danska klósettrúllu.
3 ummæli:
Bjórinn ekki spursmál heldur einungis
sjálfsagður partur að því að vera karlmenni
Dáldið harkaleg aðferð til að skeina bossa þarna í DK?
Kveðja til Gunnsó
Ragga þú fílar það
Skrifa ummæli