sunnudagur, desember 24, 2006

Latibær


Finnst eins og ég búi í Latabæ og Íþróttaálfurinn sé bara búin að gleyma Latabæ(Köben). Eða er þetta bara eitthvað sem að maður ætti að venja sig á því að það er held ég ekki ein búð opin í dag aðfangadag. Maður er vanur að geta hlupið útí 10/11 og keypt það sem að uppá vantar. En ekki hér þetta er kannski bara næs og auðvita á ekkert að vanta maður á að vera búin að hugsa fyrir öllu. Og ef að það vantar þá hringir maður bara í nokkur innanhús númer hér á Sólbakkanum. Ef að manni vantar sherry eða eitthvað sem að vantar í súpuna sem að enginn á þá hringir maður í 023 (Eika og co). Því eins og Vigdís sagði í gær " ÞAð er alveg ótrúlegt hvað leynist í skenknum hjá okkur". Svo ef að manni vantar eitthvað sem að hver ein og ein húsmóðir ætti að eiga þá hringir maður í prestdæturnar, Þær held ég lumi á ansi mörgu sem að ekki önnur heimili leggja í að kaupa. En annars er alltaf hægt að redda sér hérna á bakkanum en ég vona að til þess komi nú ekki því ég er búin að fara nokkru sinnum útí búð að kaupa það sem að uppá vantar. Jæja best að fara að koma sér í þennan gír sem að kallast jólagírinn.

Jólakort
Vegna anna þá fá allir Janúarkort í staðin fyrir jólakort vegna anna í desember þá voru jólakortin bara keypt en ekkert blek fór á þau. Þannig ekki halda að við séum búin að gleyma ykkur við höfum bara ekki tíma fyrir ykkur fyrr en í janúar.

Einnig áskotnaðist okkur stafrænmyndavél. Hún Linda Rós æði gaf okkur gömlu Sony vélina sína og fór ég og keypti stærra minniskort í hana í gær.
Þannig ef að þið viljið fá einhverjar sérstakar uppstillingar þá er bara að skrifa beiðni og Við munum redda því. En allt innan sómasamlega marka Ragga. Ekkert fríkí þú veist og Baldvin og Ásta við erum ennþá að bíða eftir myndinni sem að við vorum að tala um í sumarbústaðinum. Þar sem að viðkemur eitt stykki GÆRA.

Yfir og út

9 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Vá..foreldrar og mini-me's.
Æðislega flott fjölskylda.

Jólakveðjur frá Broadway.

Nafnlaus sagði...

trúboðinn flokkast sem sómasamleg uppstilling ekki satt??
En allavega, gaman að sjá mynd af stóðinu finally og hlakka til að lesa áfram og líf og raunir SiggaAndra á komandi ári :=)
Knús á línuna frá okkur öllum á Hverfisgötunni.

Nafnlaus sagði...

Halló og gleðileg jól flotta fjölskylda. Gaman að sjá hvað það fer vel um ykur þarna í DK.

En þar sem við erum nú næstum því orðnir nágrannar ykkar og kanski jafnvel einhverntímann hugsanlega með heimsók til danaveldis á döfunni þegar færi gefst. Vorum við að spá í hvort að það yrði kanski heitt á könnunni þarna á Sólbakkanum margumtalaða. Jaa eða bara kaldur og svalandi Calrsberg, höfum heyrt að hann sé einstaklega góður þarna hjá ykkur, og þar sem við viljum alls ekki að það sé verið að hafa of mikið fyrir okkur, er algjör óþarfi að vera að ræsa kaffikönnuna bara fyrir okkur.

Stórt jólaknús frá Stockhlm á alla línuna
Heiðrún og Snúlli

Nafnlaus sagði...

Gleðileg Jól kæra fjölskylda...

Loksins geturu farið að take myndina sem þig hefur svo lengi dreymt um Jói reddar gærunni og hann væri örugglega til í að taka nokkrar myndir af þér berró;)

En hér er allt gott að frétta nóg að gera í boðum maður er planaður fram í rauðann hehehe.
En luv and hugs.
Kveðja frá 113

SGFJ sagði...

Ef að þú ert í Stokkhólmi Heiðrún og kemur ekki í heimsókn til mín. Þá segji ég öllum frá því þegar að þú bauðst mér í heimsókn og fórst svo að kúka en hélst samt bara áfram að tala við mig með opna hurðina

Nafnlaus sagði...

Ætli ég verði þá ekki bara að koma og heimsækja þig. Ekki vil ég að þú farir að segja öllu frá því. Guð má vita hvað þér gæti dottið í hug að gera með þessar upplýsingar. Þér væri kanski alveg eins trúandi til að að setja þær á "INTERNETIÐ" meira að segja.

Nafnlaus sagði...

Hæhæ, gaman að fá fjölskyldumynd inn á síðuna, langt síðan síðast ! Vonandi höfðuð þið það súper um hátíðarnar, ég bið spennt eftir janúar kortinu hehe...

SGFJ sagði...

Heiðrún sendu mér símann þinn og einhverjar upplýsingar um hvar í stokkhólmi þú ert á
siggiandri@gmail.com

Nafnlaus sagði...

Siggi, ég vil fá dansstöðumynd af þér. .. ....... Svona eitthvað í líkingu við dansstöðuna á Aroma.