Þorláksmessa og ekki klikkaði það ég borðaði skötu Lindu Rós að þakka, nú sit ég og hlusta á Þorláksmessutónleika Bubba. Er hægt að toppa það? NEI. Gunnhildur var að benda mér á það að yfirskrift þessara síðu er vísitölufjölskyldan en ekki Vísitölu Siggi. Reyndar er það rétt hjá henni en hugmyndin með þessu bloggi var að við bæði myndum blogga. En ég hef að mestu séð um þetta. Ég hef ákveðið í framhaldi af þessu comenti að reka prófarkarlesaran,ritstjóran,útgefandan og skrítluhöfundin og sjá bara um þetta sjálfur. Vona ég að það verði persónulegra og að ég muni skrifa um fjölskyldu mína í mun meira mæli en áður.
Jakob greyið er eitthvað slappur en vonandi að það verði búið á morgun. Friðrika er eldhress og fær í flestan sjó og getur ekki beðið þangað til að hún megi hefjast handa við að opna pakkana. Sem að eru ekki komnir undir tré enþá. Enda væri Jakob búin að opna þá alla ef að henn fengi mínútu einn inn í stofu.
Verð að viðurkenna að ég er nú ekkert sérstakt jólabarn það kemur annað slagið fyrir að ég detti í jólaskapið. En það kemur ekki almennilega fyrr en að ég sest við borðið sit á móti krökkunum mínum og með Gunnhildi. Og finn fyrir þessari innri ró en hún endist nú örugglega ekki lengur heldur en fimm mínútur. Því þá kemur spurningin "hvað þarf ég að borða mikið í viðbót" en þá er innri róin komin yfir mann og ekkert skiptir máli annað en að eiga það náðugt með fjölskyldunni.
En jæja nú ætla ég að reyna að hlusta á Bubba og ég vona að hann tali ekki mikið því að hann er ekkert rosalega mikil mannvitsbrekka því miður. Mér finnst hann verða alltaf svo mikill egóisti þegar að hann er að spila þessa tónleika. Og er að dæma hina og þessa og vitiði til að hann á eftir að vitna í Guð ekki spurning.
sunnudagur, desember 24, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli