föstudagur, desember 29, 2006

Hafðu engar áhyggjur hann kemur niður með prikinu

Er svona eins og flestir búin að vera að fylgjast með fréttum og nú á bara að fara að taka Sadam Husein af líf. Ekki miskilja mig en þessi maður á skilið að deyja vegna allra stríðsglæpana sem að hann hefur framið. Allir þessir saklausu borgarar sem að fallið hafa fyrir hans hendi. Eða hinkrum aðeins hvað ætli margir saklausir borgar hafi látist í öllu þessu sprengjuregni frá bandaríkjamönnum? Og að við íslendingar skulum vera stimplaðir inní þetta þá berum við jú smá ábyrgð. Finnst bara svolitið skrýtið að það sé endalaust hægt að fela sig á bakvið svokallað sríð gegn hryðjuverkum eitthvað sem að á aldrei eftir að enda með sigri. Held reyndar að Sadam sé að fá það sem að hann vill nú verður hann píslavottur. Sá dagur þegar að Sadam verður tekin af lífi þá held ég að allt verði brjálað í Írak og USA ræður ekki neitt við neitt.



Milli jóla

Ekkert búð að gera nema að slaka á fórum í jólaboð hér á sólbakkanum á annan í jólum þar sem að var borðað hangikjöt og allt tilheyrandi. Mikið var til af mat og fengu allir smá narsl með sér heim svo mikið var til. Þetta boð var ekkert smá skemmtilegt mikið hlegið og smá grátið. Jú grátið því að karlpeningurinn tapaði í trivial sem að gerist ekki oft.
Vorum hjá Kidda í gær með svona litlujól því að hann var í einhverju fjarskanistan landi sem að ég man ekki hvað heitir. En það var rosa næs Önd og Hangikjöt á boðstólnum sem að var nátturulega bara gott. Enda ekki við öðru að búast þegar að maður fer í mat til kidda.
Svo sátum við til 9 og þá átti að fara heim en þá var Friðrika bara kominn í náttföt. Það var nátturulega ekki um annað að ræða en að fá að sofa með frænda sínum og öllum frændsystkynum sínum. Við vorum bara þrjú í kotinu í nótt sem að var smá sktýtið. En hún á eftir að skemmta sér svo vel í dag því Kiddi ætlar að fara í sund með allt gengið. Friðrika er búin að vera að spurja að því síðan að við komun til DK hvort ekki væru sundlaugar hérna.

Verða að þakka Eiríki fyrir skutlið uppí Glostrup og einnig það að hafa sótt okkur. Þetta kallar maður vin í raun.

Engin ummæli: