föstudagur, desember 01, 2006

12 Tónar

Var í gær á julefrokost með bekknum mínum þar sem að allir komu með rétti frá sínu landi. Ekkert smá spennansi að smakka hina ýmsu rétti frá framandi löndum s.s Kína, Póllandi og Líbanon. Danir eru mikið fyrir að vera að taka snapsa og kom ég með íslenskt brennivín sem að vitir menn smakkast alveg eins og Ákavíti. Reyndar var því hvíslað að mér að okkar ástkæra ylhýra brennivín er bruggað hér í DK. En bara sett á flöskur heima svo að Íslensktbrennivín er ekki Íslenskt svekkelsi. Það var alveg frábært stuð og gamann að kynnast öllu þessu fólki undir öðrum kringumstæður en í skólanum. Reyndar byrjaði kvöldið ekkert sérlega vel því að við vorum með sal á Íslandsbryggju nánar tiltekið á Weidekampsgade 21. Þannig jú ekkert svo langt frá Rektorparken þannig að ég ákvað að hjóla og tók nátturulega Krakbókina með svo að ég mundi skila mér á leiðarenda. En þið sem að þekkið mig vitið að ég er mjög áttaviltur svo ekki meira sé sagt. Ég var búin að vera að hringsóla í u.þ.b 10 mínútur í hverfinu sem að ég hélt að ég ætti að vera í og búinn að spyrja tvisvar til vegar. Þangað til að ég rekst á unga konu sem að var að viðra hundkvikindið sitt ég ákvað að spyrja hana því að hún virtist vera kunnug til staðhátta. Ég nátturulega nota mína góðu dönsku til að spyrja hana hvar Weidekampsgade er hún horfir djúpt í augun á mér og spyr ertu að djóka. Ég verð hálf asnalegur og segi henni að mér sé ekkert nema alvara í huga. Þá segir hún við erum á henni. Ég þakka fyrir mig og vona að ég sjái hana aldrei aftur. Hey hvernig átti ég að vita að þetta væri gatan sem að ég væri að leita að því að hún var ekki með nein skilti því að þetta er frekar ný gata. Allavega komst heill á leiðarenda.

Fór í eina af skemmtilegri búð í kaupmannahöfn í dag og mæli ég með að allir beini sýnum viðskiptum þangað. Þetta er nátturulega 12Ttónar. Ég ætla að kaupa alla mína diska þarna í framtíðinni og ef að þeir eiga ekki disk sem að mig langar í þá kaup ég bara einhvern svipaðan sem að þeir eiga. 12 Tónar er svona búð sem að er að gefa út listamenn sem að kannski ekki passa inní Skífu batterýið en eru samt þrusugóðir. Og auðvita á maður að styrkja slík fyrirtæki endilega kíkið inná heimasíðuna þeirra hér.
12 Tónar lengi lifi Húrra húrra húrra húrrrrraaaa. Er þetta þrefalt húra eða fjórfalt?

Ein síða ef að þig langar aðeins til að gleyma þér og kanna hve vel gefinn þú ert.

Engin ummæli: