
Jæja þá á hann Eiríkur Steinn afmæli jú þessi ofurdrengur fæddist á þessum degi fyrir tuttugu og sex árum síðan. Eiríkur er duracel kanína sem að getur haldið áfram endalaust. Stundum veit ég ekki hvaðan þessi orka kemur en hún er bara til staðar. Þetta er einn af þeim metnaðafyllstu sem að ég þekki og hann sættir sig ekki við að vera næstbestur í því sem að hann tekur sér fyrir hendur. Sem dæmi má taka þegar að hann fékk sér snjóbretti þá var hann á hverjum degi að renna sér. Hvort sem að það var á Vatsenda eða á öðrum viðurkendum skíðastöðum á stór reykjavíkur svæðinu. Ekki hætti hann fyrr en að hann var búinn að ná góðum tökum á brettinu. Einnig má segja það sama um allar þær íþrótir sem að hann tekur sér fyrir hendi hann er alltaf fyrir ofan meðallag. Ekki er um að villast að hér er um að ræða gull að manni. Og hef ég verið svo heppin að þekkja hann frá því að ég man eftir mér. Til lukku með daginn Eiríkur Steinn.
Fjölskyldan á 23
3 ummæli:
tuttugu og sex árum.....
Innilega til hamingju með daginn Eiki.
Afmæliskveðja frá fam. 113
Takk fyrir það elskurnar, sé ykkur við jólatréð á Solbakken kl. 17.00 í dag ... kannski að maður taki brettið með ef að það skyldi snjóa ;)
Skrifa ummæli