mánudagur, desember 04, 2006
Damien
Okkur hjónunum langaði aðeins að monta okkur því að þann 22 mars klukkan átta á því herrans ári 2007. Þá verðum við í einkapartyi með Damien Rice sem að er tónlistamaður ekki af verri endanum. Einkaparty jú tónleikarnir verða á Vega sem að er ekki það stór að manni líði eins og sardínu í tilraunaglasi. Að Jóa sögn. Við hjónin erum tvisvar búin að missa Damien á íslandi en það er Vigdísi að þakka að við munum sjá hann hér í Köben. Líka frábær tímasetning því að hann var að gefa út frábæran disk og er í gíðu formi tónlistalega séð. Gunnhildur gekk svo langt að segja að þegar að hún væri búinn að fara á Damien þá væri búið að fullkomna hennar tónleikastuðpul. ÞVí jú við fórum að sjá Keane sem að voru ekki góðir heldur komu sáu og sigruðu. Þeir voru geggjaðir. Svo má bæta því við að ég ætla að reyna að fara á Dr.Spock á föstudaginn en þeir verða að spila í 12 tónum klukkan 17:30 og verða svo á Rock um kvöldið. Vonandi kemst ég um kvöldið á Rock. En ég er einnig að fara á Julefrokost.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli