laugardagur, nóvember 11, 2006


www.myspace.com/Keane


Það er bara eitt orð yfir Keane tónleikaba í gær og það er váégheldaðKeanesébestalivebandíheimiogdjöfullfaraþeiríipodinminn.
Þetta voru rosalegir tónleikar og ekki nóg með að þeir eigi góð lög þá eru þeir geggjaðir live. Ég er kannski ekki dómbær á allar hljómsveitir í heimi en Gunnhildur sem að hefur nú farið á nokkra tónleika um ævina. Og þá meina ég hún er búnn að sjá öll helstu nöfnin í þeim bransa s.s Red hot, Clapton, No doubt og fleiri og fleiri. Og hún sagði að þetta hefðu verið einir af þeim betri. Við höfðum á því orð í gær að það er svolitið slæmt að fara á svona góða tónleika fyrst. Því við ætlum að reyna að vera dugleg að fara á tónleika meðan að við erum hérna úti. Þetta kostar nefnilega bara brota brot af því sem að þetta kostar heima. En 10 af 10 mögulegum er bara helvíti gott. Keane bara góðir gott kvöld og hérna er smá smjörþefur af því sem að við sáum í gær.
En ég held að ég hafi átt stningu gærdagsins vorum í lestinni á æeiðina í KBhallen og hittum þar fyrir tvo unga stráka. Spurðum þá hvort að þeor vissu hvar höllin væri þeir sögðust ekki vita það en að þeir væru að fara þangað. Svo spjöluðum við eitthvað við þá fínir strákar svo spyrja þeir hvaðan við erum og við svörum því.
En svo spurði ég hvort að þeir væri gamlir og hvort þeir voru jafnaldrar. Og já þeir voru það því þeir eru eineggja tvíburar. Vá hvað ég roðnaði. Mér fannst þeir ekkert líkir fyrr en eftir að þeir sögðust vera tvíburar.
En fyndið hitti vin hans Eirík Steins á tónleikunum sem að heitir Gunnar hann var með konunni sinni henni Röggu. Og við vorum með þeim allt kvöldið en fyndi að hitta þau því ég held að ég hafi hitt Gunna einu sinni þegar að Eiríkur plataði mig og Heimi til að keppa í fótbolta. En það var alveg ótrúlegt hvað var gaman að hitta þau í ljósi þess að ég hef bara hitt Gunna einu sinni og þekkti hann ekkert mikið. Alltaf gaman að hitta skemmtilegt fólk.

Jæja best að fara að hlusta á Keane og aftur Keane. get ekki beðið eftir að fara aftur á tónleika bara einhverja tónleika en þó ekki á Justin Timberlake því að maður verður að hafa eitthvað stolt.

1 ummæli:

Herdis sagði...

haha. ég hef farið á justin timberlake tónleika. fór í london:) það var bara gaman, en ég myndi samt taka keane fram yfir justin - anyday:) kv, Herdís.