Ég er hræddur!!!!!!!!!! Ekki við það að búa í stórborg, ekki við það að búa í kallfæri við eitt af alræmdustu Hells Angels fangelsi Danmerkur, heldur ekki við það að búa nálægt þeirri götu sem einna mesta dóp er selt í í DK. Og alls ekki við það að búa mjög nálægt kirkjugarði.
Heldur við þetta helvítis tíst sem að maður heyrir alltaf þegar að maður er að labba út í bíl á kvöldin maður heyrir þetta alltaf en sér aldrei neitt. Það er bara svo rosalega óhugnalegt að heyra svona hljóð og sjá aldrei kvikindið. Kannski er þetta kvikindi sem að er jafn stórt og mannsskepnan og lifir á mönnum. Hugsanlegt en samt ólíklegt talandi um að skepnan lifi á mönnum þá hef ég ekki séð hann Sigga Kolbeins á 61 lengi. Kannski er skepnan búinn að borða hann.
Ég fékk skemmtilegt meil í dag sem að varðaði stafsetningavillur á blogginu. Í þessu meili stóð "Kæri Siggi þú getur ekki verið að birta svona rangt skrifaða stíla í tíma og ótíma. Ég veit fyrir vissu að þú varst í stafsetningu í Fellaskóla. Og ég veit að þú lærðir stafsetningu þar. Þannig vinsamlega farðu betur yfir þetta."
Kæri meilari gæti það verið að ég var í stafsetningu í Fellaskóla? Og það sé bara málið. Eða að ég er að skrifa blogg á milli tíma þar sem að ég er búinn að vera að tala dönsku, ensku og hugsa á íslensku spurning. En allavega þá hlakkar mig til að sjá þig þegar að þú kemur út. Og þá skulum við sjá til hvað þú lærðir mikið í dönsku í Fellaskóla.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Hæ hæ familí,
Þið verðið úti um jólin er það ekki? Er myndavélin ekkert að koma úr viðgerð?
Annars allt gott að frétta héðan. Allir biðja að heilsa,
Knus og kram, p&p.
Já það er spurning hvaða hljóð þetta sé hef líka verið að pæla í því en Siggi minn þú þarft ekkert að vera hræddur, Gunnhildur hjálpar þér eins og hún gerði í þvottahúsinu hahahahahahaha. En já hvað hefur orðið af honum Sigga M það er spurning hvort hann hafi verið étinn en ég held eki að það sé neitt dýr hérna í garðinum heldur ?????
Já maður verður heldur betur að passa stafsetninguna annars verður fólk alveg brjálað en mér finnst þú bara standa þig ágætlega.
Vona að tónleikarnir hafi verið góðir heyri í ykkur í dag.
Solbakken hilsen LOK 113
Myndavélin er ónýt og ekki til peningar fyrir nýrri en við höfum ekkert breys
Myndavélin er ónýt og ekki til peningar fyrir nýrri en við höfum ekkert breyst
Skrifa ummæli