Í dag erum við Friðrika heima vegna þess að Friðrika er eitthvað slöpp en ekkert alvarlegt bara smá hósti og pínu hiti. Þar sem að hún veit að hún her hiema útaf því að hún er veik þá er hún búinn að ákvaða að hún þurfi ekkert að standa upp heldur láta mig bara þjóna sér. Hún er jú veik.
Helgin sem að leið var bara ágæt fórum með Hildi út á laugardaginn og Arnar passaði börnin. Mættum í Sunnudagaskólan uppí Jónshúsi sem að var mjög gaman eins og vanalega. Eftir Sunnudagaskólan þá fékk ég sérstakt símtal því að hann Eiríkur Steinn vinur minn hringdi og spurði hvort að hann mætti koma yfir og baka vöflur fyrir okkur. Maður neitar sko ekki svoleiðis boði og ekki nóg með að koma með vöflu deig og járn heldur kom hann með allt meðfylgjandi, þrjár gerðir af sultum rjóma og mjólk. Deigið hafði hann búið til from scratch sem að telst vera plús og einnig smakkaðist þetta bara mjög vel. Embla hanns Eiríks Arnar kom í kaffi en Eiríkur Örn vara að sinna samviskunni og var í skólanum að vinna að verkefni. Á meðan að við snæddum á góðgætinu þá var Gunnhildur með annan fótin í eldhúsinu að baka Franska súkkulaðiköku. ÞEgar að allir vorubúnir var komin tími til að huga að matnu og eldað ég hamborgarahrygg í salsasósu með gtatíneruðum kartöflum (ala Jói style). Þetta tókst bara nokkuð vel og fólki fannst þetta bara nokkuð gott.
Jæja best að fara að gera eitthvað uppbyggilegt eins og að taka til.
Er allt að fara fjandans til þarna á Íslandi var að lesa þessa frétt á mbl.
mánudagur, nóvember 06, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Já þetta var nú meiri veislan, ég ligg enn á meltunni eftir allar þessar trakteringar. Takk fyrir okkur ;)
Skrifa ummæli