mánudagur, nóvember 13, 2006

Nýtt útlit

Nýtt útlit var orðin frekar þreyttur á bleika litinum. Blogga meira seinna í dag er í tíma sem að heitir á hinu ylhýra Fundartækni. Hélt reyndar alltaf að eina sem að þyrfti til að halda góðan fund væri kaffi og kleinur. En þar sem að danirnir eiga ekki kleinur þá verðum við að taka heila önn í fundartækni. Og ekki eins og það sé gaman í þessum tíma en þetta er eitthvað sem að maður verður að klár. En fólk mánaðarins er án efa mamma og Siggi sem að sendu okkur hangikjöt. Og einnig fær burðardýrið þakkir hún Guðbjörg.

Engin ummæli: