miðvikudagur, nóvember 01, 2006

J-dag

jæja ef að það hefur einhvertíman verið tími til að skella sér í lax þá er það núna því að það er byrjað að snjóa hér í DK. Enda ekki seinnavænna því jólabjórinn kemur á föstudaginn. Endilega kíkið á linkin og segið mér að þið séuð ekki byrjuð að humma með. Nema hvað að ég held bara að ég fari óvenju snemma í jólaskap. Hef verið að detta í jólaskap svona á þorláksmessu þegar að ég er að leita að gjöf handa Gunnhildi. En í ár er svo mikið um að vera t.d jólativoli, Jólabjórinn, Julrfrokost og svo nátturulega jólaprófinn. Æji datt úr jólaskapi við þetta síðasta orð. En ég er búinn í skólanum 21. des og byrja ekki aftur fyrr en í byrjun Feb. Svona á þetta vera.

Var búinn að lofa að setja hérna inn link á umsóknareyðublöð fyrir skóla í DK Hér er það



Hilsen
Siggi Andri

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæhæ, jú ég stóð mig að því að raula með, en eitt sem ég er að spá, erum við á undan ykkur að fá Jólabjórinn, hér er einn sem fór í gegnum fríhöfnina í gær og þar var Tuborg jólabjórinn til sölu !! haha... Ísland ávallt í fararbroddi....

Nafnlaus sagði...

Já maður getur ekki annað en að hugsa um jólinn þegar snjórinn er farinn að falla og djö.... kuldi það á að drepa okkur úr kulda held ég bara. En er ekki stuð fyrir smá jólabjór á föstudaginn?????
over and out
LOK 113

Nafnlaus sagði...

Hanna þetta er jólabjór síðan í fyrra sem að íslendingar fá. Ekki nýbruggaður með angan að jólum. Nei ég veit það ekki en þetta er bara svo mikið prómó hérna að það er engu lagi líkt. Fólk smakkaði þennan sama bjór í fyrra en samt eru allir að bíða eftir að smakka hann í ár. Danir eru skrýtnir eða bara miklu flottari en við. Spurning