Hildur lenti í gær og var ég valin í það mikilvæga verk að sækja hana uppá völl í gær. En eins og flestir vita þá hefur Gunnhildur séð alfarið um að keyra hér í DK vegna þess einfaldlega að hún er vön að keyra í útlöndum og ekki eins áttavilt og ég er. Þetta gekk allt eftir óskum ég komst út úr innkeyrslunni án þess að líta í kortabók og meira að segja útt á horn og alla leið áleiðis þegar að ég áttaði mig á því að ég var á leið til Óðinsvé. Sem að er í akkúrat hina áttina nú voru góð ráð dýr því að það er ekkert verið að gera manni það auðvelt fyrir að snúa við á hraðbrautm.. Þannig að ég þurfti að keyra inni Rauðrófuna og taka nettan hting þar en kallinn skilaði sér uppá kastrup. En ekki fyrr en hann var búinn að fara vitlausu meginn inn á kastrup og bíta í það súra epli að hann þyrfti að fara út og keyra aðeins lengra. En allt er gott sem að endar vel.
Hildur var með þvílíkt stóra tösku og húb var ekki létt ég skaut að henni að hún ætlaði nú bara að vera um helgina en ekki framm á jól. Þá tjjáði hún mér það að ég ætti nánast allt sem að væri í töskunni. Sem að reyndist síðan rétt greyið Hildur er því einungis með sturr gallapils og einar buxur. Ef að einhver er 150 cm og býr í DK þá vinsamlegas vertu í bandi því að Hildur gæti þurft að fá lánaðar hjá þér buxur. En það sem að Hildur kom ekki með til okkar vá megnið var nú reyndar til krakkana t.d skyr.is sem að rann vel ofaní krakkana í morgun töluvert betur ofaní Jakob þar sem að hann dróg systur sína í land og kláraði líka hennar. Svo var nammi cocco puffs, flatkökur, hangikjöt og hvað eina.
Mamma og Siggi þessi yndi sendu okkur folaldakjöt sem að verður að taljast rausnalegt fyrir okkur því að við gjörsamlega elskum að borða gott folaldakjöt. Þannig að Mamma ,Siggi og Hildur tólf stig.
Annars er ekkert mikið að frétta héðan annað en það er kalt kalt kalt og aftur kalt svo kalt að ég er byrjaður að ganga í Janus föðurlandinu sem og öll fjölskyldan. Já mamma og Siggi gáfu allri fjölskyldunni Janus heilklæði áður en að við fórum út í sumar. Sem að eru að koma að góðum notum einnig sofa krakkarnir og Gunnhildur í þeim. Kannski vegna þess að helvítis ofnin virkar ekki inní herberginu hjá okkur. Ég er búinn að reyna allt til að fá hann til að virka.
Tíminn var að byrja verð að fara
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli