Jæja ekkert búið að koma hérna inn síðan á fimmtudaginn það þýðir samt ekki að það hafi ekkert verið að gera. Reyndar eru virku dagarnir bara svona vanabundnir, vakna, skóli, heim borða ,sofa. En síðasta helgi var frekar strembin hjá mér ég átti baravakt upp á bar á föstudaginn sem að byrjaði mjög rólega en endaði ekki fyrr en klukkan 04. Sem að er töluvert lengri opnunartími en vanalega því hann á bara að vera opinn til klukkan 02. Því þannig er mál með vexti að það var bjórkvöld hjá DTU niðrí í sal sem að er á kollegíinu. Og þegar að bjórinn var búinn þar þá komu allir upp og þetta voru bara íslendingar. Þanig að ég var ekki kominn niður fyrr en klukkan hálf fimm. Og vaknaður um ellefu og fór út með krakkana að leika og leyfði Gunnhildi að leggja sig aðeins. En á laugardeginum var han að spila á Íslandsbryggju og var förinni heitið þangað en ég var nú alveg að guggna á því. Vegna þreytu en Gunnhildur tók það ekki í mál að ég færi ekki. Sem að ég sá ekkert eftir því að Ham voru geggjaðir og Óttar Proppé bað að heilsa tengdó. Þannig að getur einhver komið þeirri kveðju til hennar því ég veit að hún kann ekkki að komasr inná bloggið. Allavega nú er bara skóli á fullu skil í hverri viku og ekkert einhver smá skil heldur eru þetta allt frekar stór verkefni. Og svo erum við með eitt stórt verkefni sem að verður metið í desember og þar eru alltaf einhver mál sem að þarf að leysa.
Jæja ætla að henda smá hérna vissirðu að hérna inn
Vissir þú að...
...það er ekki hægt að sleikja á sér olnbogann!
...krókódílar geta ekki rekið út úr sér tunguna!
...hjarta rækjunnar er í höfði hennar!
...í rannsókn á 200.000 strútum í yfir 80 ár hefur ekki einn stungið höfðinu í sand!
...svín geta ekki horft upp til himins!
...menn stunda að meðaltali 3000 sinnum kynlíf um ævina og eyða meira en tveimur vikum í kossa!
...rúmlega helmingur fólks í heiminum hefur hvorki hringt né svarað í síma!
...hestar og rottur geta ekki ælt!
...rottur fjölga sér svo hratt að eftir 18 mánuði geta tvær rottur átt milljón afkomendur!
...súperman var einhvers staðar í hverjum einasta þætti af Seinfield!
...kveikjari var fundinn upp á undan eldspýtum!
...35% þeirra sem auglýsa í einkamáladálkum eru þegar giftir!
..."kvak" anda bergmálar ekki og enginn veit afhverju! .
..23% bilana í ljósritunarvélum stafa af því að fólk hefur reynt að ljósrita á sér óæðri endann!
...þú munt sennilega borða 70 skordýr og 10 köngulær í svefni um ævina!
...að flestir varalitir innihalda fiskihreistur!
...allir hafa persónugreinanleg tunguför eins og fingraför!
...minni gullfiska er um það bil þrjár sekúndur!
...fólk getur rifbeinsbrotnað við að hnerra harkalega!
...ef heyrnatól er notað i eina klukkustund eykst bakteriufjöldinn í eyrum verulega og getur orðið 700 sinnum meiri en venjulega!
...kattarhland glóir þegar á það skín útfjólublátt ljós!
...tungufar er alveg jafn einstakt og fingrafar!
...gúmmíteygjur endast lengur ef þær eru frystar!
...hákarl er eini fiskurinn sem vitað er um sem getur blikkað með báðum augum!
...fullt nafn Los Angeles borgar er ,,El Pueblo de Nuestra Senora la Reina de los Angeles de Porciuncula''
...kötturinn hefur 32 vöðva i hvoru eyra!
...auga strútsins er stærra en heili hans!
...tígrisdýr hafa ekki bra röndóttan feld heldur er húðin röndótt lika!
...rúmlega 99% allra þeirra sem lesa þetta munu reyna að sleikja á sér olnbogann!!!
þriðjudagur, október 31, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
haha... ég er í þessu 1% eða minna, þar sem ég reyndi ekki að sleikja á mér olnbogann eftir að ég las þetta...... kannksi af því ég hef reynt það áður ;o)
Skrifa ummæli