Fórum til tengdó um helgina sem að var bara mjög gaman étið og slappað af. En þá er þetta hversadagslega byrjað aftur nema hvað að við erum með fullan frystir af íslenskum fiski og kjöti. Hildur systir sendi okkur öskju af fiski og tengdó keypri ýmsar nauðsynjavörur s.s súrar g+urkur frá Ora S.S sinnep matarkex og cheerios.
Þannig að tími kjúklingsins er búinn í bili og tími fyrir fisk í paxo raspi steiktum uppúr íslensku smjöri. Hvað er betra en akkúrat það.
Veit ekki hvort að ég megi segja frá þessu en það er búið að bjóða okkur í brúðkaup hjá ????? ?????? og getiði nú. Það verður 17 ágúst og vá hvað mér hlakkar til þetta verður eitt af þessum brúðkaupum sem að verður legandary, ég ætla allavega að skemmta mér eins og enginn sé morgundagurinn. Og jafnvel að maður hendi inn einum ræðustúf eða svo.
En best að fara að reikna vektora og læra lög Newtons .
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
hæhæ, öll saman, bara ad thakka fyrir lánid á sófanum og almenna gestrisni. hlakka til ad hitta ykkur í næstu viku:) magga stína og fjölskylda
Skrifa ummæli