Tit verdid ad sætta ykkur vid danskt lyklabord tví ég er ekki búinn ad finna út hvernig ég á ad breyta tessu. Jæja hver er bestur er bara búinn að breyta lyklaboðinu og nú verður allt brjálað hér í skólanum. En maður fórnar sér. Allavega erum við ekkert búinn að vera neitt sérstaklega dugleg að henda hér inn færslum, það er bara búið að vera nóg að gera. Ég er búinn að vera á fullu í skólanum svo er tengdó búinn að vera hjá okkur. Og ekki getur maður nú sleppt spilunum til að fara að blogga. Því eins og alþjóð veit þá er Kríuásfjölskyldan heimsmeistarar í spilinu trekant. Í Guðana bænum ef að þið þekkið ekki spilið trekant þá ekki reyna að Googla nafninu. Því það er eitthvað sem að segir mér það að þið fáið litlar upplýsingar um spilamennsku. Alla vega þá er búið að vera notalegt að hafa þau. Bæði það að Ásta eldaði nátturulega bara góðan mat og alltaf gaman að tala við hana. Og einnig að uppgötva að hann Baldvin tengdapabbi minn er bara byrjaður að taka gríni bara ansi vel. Og ekki sé minnst á hvað krakkarnir voru ánægð að sjá þau. En svona til að varpa smá ljósi á þetta allt saman þá var gríðalega gott að sjá þau og vil ér þakka þeim fyrir góða samveru. Ég náði nefnilega ekki að kveðja þau því ég fór svo snemma í skólan.
En að öðrum mikilvægum málum þá gengur mér bara vel í skólanum og er ekkert smá ánægður með þetta nám. Meira að segja þá gengur stærðfræðin líka vel undur og stórmerki gerast enn. Gunnhildi gengur vel í tungumálaskólanum kiss er kominn á 4 level og ekki einu sinni búinn að þurfa að taka próf í síðustu tvö skipti. Þeir sem að ekki þurfa að fara í próf í kiss eru þeir sem að hafa verið með 4 villur eða minna á námskeiðinu. Og auðvita er Gunnhildur í þeim hópi. Reyndar er þessi Ku kúrs eitthvað erfiðari og hún er ekki búinnað fara í neitt próf en henni finnst henni ekki ganga vel. En þeir sem að þekkja Gunnhildi vita að hún klárar þetta með glans. Krakkarnir eru alveg að blómstra Friðrika búinn að eignast góðan danskan vin á leikskólanum og talar bara við hann dönsku en ekki hvað. Jakob er að gera góða hluti á leikskólanum og lætur stelpurnar stjana við sig. Fyndið Ásta keypti föt á Jakop og var að sýna honum nýju fötin þá sagði minn maður "ég á svona". Svo sýndi hún honum spiderman bol þá sagði minn "ég á svona hulk bol" hann var bara ekkert hrifin. En svo var Friðrika svo ánægð með allt sem að hún fékk að hún vildi helst bara sofa í fötunum.
En allavega ef að það er einhver sem að kann á autocad og finnst það flókið og leiðinlegt sem að það er. Þá verði þið að kanna uppfærða útgáfu af skethcup . Þetta forrit er bara flot en ekkert vera að downloda þessu nema að þið séuð með ágætis tölvu. En hvað er eginlega að gerast þarna á Íslandi var að lesa þetta á mbl. Er svona eftirsóknavert að vera í löggunni á íslandi. Reyndar er allt að verða vitlaust hér í lögregluskólanum í DK. Vegna hins vinsaæla þætti Önnu Phil þetta er reyndar rosalega góðir þættir en mig langar ekkert að verða lögga í DK. En Danir eru ekki á sama máli heldur eru þetta aðalmálið hér hjá fólki á öllum aldri að verða lögga. Jæja best að fara að gera eitthvað hérna í skólanum.
E.S
Ég held að ég hafi gert það skemmtilegasta sem að ég hef gert lengi. En það var að hún Vigdís sem hringdi í mig og bað mig um að ljúga hann Eirík Stein fullan. Því að hún ætlaði að koma honum á óvart og fara með hann til Íslands. Ég er nú ekki maður sem að er að ljúga að fólki en var tilbúinn til að gera þetta fyrir hana Vigdísi. Og það tókst svona vel að ég fór með hann uppá Kastrup og hann vissi ekki neit. Náði meira að segja eð ver með video vélina með og hann fattaði ekkert. Ég fékk hann til að koma upp á Kastrup með því yfirskini að við værum að fara að ná í einhverjar töskiur semað mamma væri að senda mér. Og að hann yrði að koma með mér því að ég rataði ekki uppá Kastrup. Vá hvað þetta var gaman vonandi skemmti þið ykkur vel á Íslandi.
miðvikudagur, október 18, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli