Þá er svefnsófinn kominn fimm vikum eftir að hann var pantaður. Nú er stofan að verða annsi fín og getum við nú boðið gestum uppá almennilega svefnaðstöðu og nú þegar er fyrsti gesturinn kominn og farinn. En það var hún Magga Stína sem að svaf hjá okkur í nótt á nýja sófanum og líkaði henni vel. Hún var hér í köben í svona skoðunarferð með skólanum sínum. Hún er að læra að verða Arkitekt. Og ekki eru fáar byggingar hér til að skoða ef að maður hefur áhuga á slíku.
Það hefur væntalega farið framjhjá öllum sem að ekki búa í DK að Það eru verkföll í gangi í félagþjónustu geiranum. Og eru leikskólar lokaðir annað slagið. Já annað slagið og hér eru það foreldrarnir sem að eru að loka leikskólunum. Þeir meina leikskólakennurunum að komast til vinnu til að sýna samstöðu í verki því þetta jú bitnar á börnunum okkar. Þegar að það á að skera niður. Ég vona bara að það komi ekki til verkfalls því það er alveg nóg að gera í skólanum nú þegar. Og maður ná eiginlega ekki við því að missa úr dag því það er mikilvægt að vita hvað maður á að gera næst. Annars gengur bara vel í skólanum verkefni sem að ég skilaði inn fyrir viku eða svo. Var trkið fyrir og sagt það ættu allir að hafa skilað þessu eins og Siggi skilaði þessu. Og var það notað sem svona fyrirmynd mér leið eins og ég væri klár. Skrýtin tilfinning að vera klár vonandi kemur þetta ekki aftur fyrir.
Óhappa Siggi
Var í skólanum í síðustu viku að tala við fólk á msninu þegar að ég áttaði mig á því að það væru allir með mynd á displayinu hjá sér á msn. Nema ég, eitthvað varð ég að gera í þessu ég hugsa vel og lengi um hvar ég gæti ég náð í mynd af mér. Þar sem að ég var í skólanum og ekki með aðgang að heimilistölvuni þar sem allar mynidrnar eru, voru góð ráð dýr. En tölvurnar í skólanum voru eitthvað hægar þennan dag. Ég googlaði bara Fabio og komst að því að hann er með fan síðu. Ég fór inn á hana og opnaði eina mynd af kallinum. Nema hvað þá þurfti endileg allur bekkurinn að safnast saman fyrir framan tölvuna við hliðina á mér. Út af einhverju Autocad vesni. Þannig að ég reyndi að loka umræddri síðu en ekkert gerðist því tölvan var eitthvað slow hjá mér. Og í panikinu þá klikkaði ég svo oft á músina að ég dróg gríðalega athygli að mér. Og þegar að ég leit við þá var enginn að horfa á Autocad kennsluna á tölvuskjánum við hliðina á. Heldur voru allir að spá í kynhneigð íslendingsins. Loksins lokaðist helvítis gluggin með Fabio. Þá vatt Rasmus sér upp að mér og spurði hvort að Fabio væri vinsæll á Íslandi.
Mig langaði að hverfa ofan í jörðina.
Um helgina þá erum við að fara uppí í sumarhús til tengdó og kemur öll ferðasagan eftir helgi.
Eitt langar mig að vita og það er hvað bloggið hjá Herdísi og Ulf er ef að einhver veit það þá endilega að skrifa það hér í commentið. Eða senda mér bara meil siggiandri@gmail.com
Hilsen Siggi (Fabip fan númer eitt í kaupmannahöfn)
föstudagur, október 06, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Bloggið hjá Herdísi og Ulf er www.skuggi.net
Skrifa ummæli