fimmtudagur, september 07, 2006

Pirrrrrrr

Þessi september mánuður virðist ekki verða jafn góður og búist var við, búið að vera rigning og rok sem er bara ömurlegt. En hvað um það bjórinn er samt ódýr hérna.
Þá að þessum landsleik hvað er í gangi með þetta íslenska landslið það vantar alla leikgleði og metnað í þetta lið. Hvernig væri nú bara að leggja þetta lið niður í þeirri mynd sem að það er í.
Og setja á laggirnar fyrir þann pening sem að fer í þetta og koma upp góðu krikketliði. Ger eitthvað nýt sem að við vonandi gætum orðið kannski góð í. Og ef að krikketliðið nær sér ekki á strik þá finnum við bara upp einhverja íþrótt og verðum eina landið í heiminum sem að spilar þessa íþrótt. Og þá verðum við heimsmeistarar málið dautt.
Jæja nenni ekki að tala um þetta drasl lið.
Vonandi verðum við betri í handboltanum í vetur.

Engin ummæli: