Jæja Kveikið nú á hátölurunum eða enn betra setjið á ykkur heyrnatól og klikkið hér
Þetta er bara eitt það fallegsta lag sem að ég hef heyrt og í flutnigi hans Odds í brúðkaupinu okkar var það bara betra. Mér datt þetta í hug vegna þess að vinir okkar hér á Solbakken Jói og Rakel eru að fara að gifta sig næsta sumar 07/07/07. Og eru ekki alveg búinn að velja lagalistann þá sögðum við þeim frá þessu lagi sem að var í brúðkaupinu okkar. En ég svona hálf öfunda þau að eiga það eftir að gifta sig því þetta er svo goður dagur. Og einnig ef að Ragga les þetta þá vantar mig ennþá símann hjá Danna kokki því Jói var að spurja mig hvort að ég þekkti einhvern góðan kokk. Þannig að Danni sem kokkaði í brúðkaupinu hjá Maríu og Einari er bara sá besti og ég mundi mæla með honum og þau ætla að tala við hann. En annas er ekkert mikið að frétta annað en það að þetta er sorgardagur því Steve Irwing er dáinn.
Heimir er búinn að vera hjá okkur en hann er á milli íbúða og alveg sjálfsagt að hýsa hann á meðan. Og Jakob er búinn að taka ástfóstri við hann tekur utan um hann og situr hjá honum þegar að við erum að horfa á sjónvarpið og kemur einnig með bjór fyrir hann. Þetta er svo vel upp alið.
September er kominn og vonandin rignir minna en í Ágúst því að annað er ekki hægt. Ágúst var bara blautur og ekki gamann að hjóla í skólan. Allt hefs þetta nú sérstaklega því að það eru engar brekkur hérna í landinu flata.
N'u erum við bara að bíða eftir svefnsófanum sem að við vorum að fjárfesta í jú við erum að bíða því að það er verið að bólstra hann. En vonandi kemur hann áður en að tengdó kemur því ég nenni ekki að hafa þau á milli okkar Gunnhildar. Það verður nú gamann að fá þau í heimsókn hvort sem að þau verða á milli eður ei. Gunnhildur er byrjuð að skrifa niður hvað þau eiga að koma með og held ég að hún sé að fara að opna búð. Ég sakna einskins matarkyns en það er nú bara kannski út af því að það er allt sem fæst á íslandi inní skáp hjá mér. Reyndar er ég að ljúga mig langar í harðfisk og hákarl ég verð að biðja einhvern að senda mér harðfisk. Það er seinnatíma vandamál. Ég ætla nú ekki að hafa þetta lengra því ég er að fara í skólann. En endilega skrifið eitthvað í commentið því það er hundleiðinlegt að skrifa og fá ekkrt comment.
Hilsen
Siggi Andri
mánudagur, september 04, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Ég var einmitt í brúðkaupi um helgina með a la carte avec Danni. Og auðvitað sló það í gegn sem endranær.................ég fer að kíkja á símanúmerið, hef ekkert verið að spá í þessu. Bið að heilsa kellunni og segðu henni að svara tölvupóstinum skrifuðum fyrir sirka mánuði síðan.
Reg
Já, talandi um brúðkaup.....við sköturnar eigum nefnilega pantaða kirkju þann 07/07/07 á afmælisdaginn hans Gunnars:-) Eruð þið nokkuð bissí?
Erum ekki alveg komin svo langt að velja lagalistann....:-)
Bestu kveðjur til Köben...komum aftur 19. okt
Við verðum að kíkja í fílófaxið
Skrifa ummæli