Nanna þetta er eina myndin sem af ég á af þérJæja þá er ég búinn að fara á fyrsta Freddagsbarinn í skólanum og það var bara gamann. Þetta er svo mikil stemmning og ekki síður vegna þess að á föstudaginn þá vorum við að klára verkefnatörn. Ef að svo má kalla vorum að kynna verkefni sem að við vorum búinn að vera að vinna að síðustu tvær vikurnar. Minn hópur fékk bara mjög gott feedback en við fáum enga einkunn. En allavega þá er ég með alveg ótrúlega tilviljun sem að ég lenti í á skólabarnum.
Ég vara bara þarna að tala við fólk af öllum önnum. En svo þegar að líða fór á kvöldið þá fækkar aðeins í hópnum eins og gengur og gerist. En þá fór ég að tala við hann Martin sem að er með mér í bekk. Nema hvað að hann fer að segja mér að hann hafi farið til Íslands þegar að hann var lítill. Því að hann eigi nú frændfólk þarna og að frænka hanns sé gift manni sem er kallaður Gutti og búi á Akureyri. Og eitthvað kannaðist ég nú við það nafn og ég spyr hann þá hvort Lisbet sé frænka hans. Hann verður skrýtinn á svipin og spyr mig hvernig ég viti það. þá segi ég honum að konan mín eigi bróðri sem heiti Mikki og að hann eigi konum sem að heitir Nanna. Og þá vissi ég ekki hvert að hanna ætlaði að fara hann trúði þessu bara ekki. En eftir að hafa rætt vel og lengi um þetta var ekki um að villast Nanna er frænka hans. Og áður en ég vissi af þá var Martin búin að hringja í mömmu sína og bara alla fjölskylduna sína. Ég fór nátturulega í það verkefni að hafa uppá Nönnu sem að gekk hægt því að ég get ekki hringt úr danskasímnum mínum til Íslands. En ég get sent SMS og ég sms-aði einsog enginn væri morgundagurinn. Loksins hætti ég að nenna að smsa því það bar lítinn árangur og fékk bara að hringja í símanum hans Martins. Hringdi ég í Lindu sem að hafði uppá Nönnu sem að hringdi í mig og fékk að tala við Martinn sem að fór næstum því bara að gráta. Enda ekki séð hana síðan að hann var 8 ára. Og svona by the way þá töluðu þau saman á dönsku sem er bara mjög gott. En þá var þetta nú ekki búið enn því að ég varð að hitta systit hans Martin að hans sögn og fórum við á pöb sem heitir den glade gris. Og verð ég að segja að Nanna og systir hans Martins eru bara svolitið líkar. En þetta er falleg saga sem að endaði vel. Og Nanna ég á að koma með myndir af þér í skólan á mánudaginn þannig að ef það er einhver ein frekar en önnur sem að þú vilt að ég taki með. Sendu mér hana þá siggiandri@gmail.com. Og líka ef að einhver sem að er að lesa þetta á flotta mynd af Nönnu þá bara að senda hana.
En þá að Solbakken sommerfesten dagurinn byrjaði bara vel hjá mér þó að ég væri smá ryðgaður frá fyrrakvöldi. Þá lætur maður það ekki á sig fá og fór ég og krakkarnir út að hjálpa og fylgdi Gunnhildur okkur stuttu síðar. Þetta byrjaði allt með morgunmat hér úti sem að var bara góður nýtt brauð og gotterrí. Því næst reimuðu nokkrir vaskir drengir á sig takkaskóna og keptu fyrir Íslandshönd á móti færeyingum og dönum. Ég var ekki með því Gunnhildur var með þvílíkan hausverk og var henni ráðlagt að leggja sig. Þannig ég var að fylgjast með börnunum. En við studdum strákana okkar sem að unnu mótið að ég held. Því næst byrjaði móttakan þar sem að gestir og fyrrum íbúar komu að borða smörrebrauð og drekka öl. Og spilaði djassband taktfast undir smurbrauðsátinu. Síðan um klukkan 3 þá byrjaði bjórkynnig sem endist í tæpa tvo tíma og var gaman að smakka svona marga misjafna bjóra. Svo var maður bara að dóla sér þangað til maturinn átti að fara að byrja en eins og veðrið hafði verið gott um daginn þá byrjaði að rigna eins og helt hefði verið úr fötu klukkan nákvæmlega 18:30. Þetta man ég því ég byrjaði á vakt á barnum klukkan 18:30. Nú voru góð ráð dýr en þá var bara allt fært í skjól inní tjald og undir skygni. Í matinn var grillað lamba og svínakjöt sem að rann misjafnlega ofaní fólk. En allt kláraðist nú á endanum en meðlætið kláraðist fullsenemma. En þá byrjaði hljómsveir,sambadans og almennileg drykkja. Gunnhildur sá um að halda uppi heiðri fjölskyldunnar því ég fór að sofa bara með börnunum. Held ég að henni hafi bara tekist það með miklum sóma. Einnig héld tökubarnið okkar líka uppi heiðri nýju fjölskylunnar sinnar og tókst honum það vel. Við vildum ekki segja neinu frá því að við værum að fara ættleiða barn fyrr en það var allt komið í gegn. Það eina sem að á eftir að gera er að skrifa undir pappírana pg þá verður Heimir vinur minn sonur minn. Hann er í aðlögun hjá okkur þessa helgina og er hann búinn að standa sig vel kom með kassa af bjór í gær og hefur hann verið góð búbót fyrir heimilið.
En því miður á ég engar myndair af sommerfestinu en ég skal verða mér út um einhverjar til að setja hérna inn.
1 ummæli:
Siggi þú ert pottþétt með bestu myndina af mér þarna efst á blogginu ykkar!!! ég þarf ekkert að senda þér aðra :D
hehe, sendi þér eitthvað skárra hið snarasta..
kv, nanna grönvaldt :)
Skrifa ummæli