Það sem að hæst ber á þessum drottinsdegi er að við(Gunnhildur) vorum að kaupa svefnsófa sem að við fáum afhentan eftir 3-5vikur. Jú svolitið langur tími en þetta fyrirtæki bólstrar sófana jafnóðum sen að er mjög sniðugt. Því þá sitja þeir ekki uppi með sófa á lager. Þetta er gríðalega þægilegur sófi bæði til að sitja í og sofa.
Siggi er á fullu í skólanum é að skila verkefni á morgunn sem að er búið að taka tvær vikur.
Þetta er einbýlishús frá A-Ö sem að er búið að vera bara mjög gaman. Og vona ég að þetta er það sem koma skal. Reyndar er venjubundin vika með kennslu ekki búinn að vera en það byrjar á mánudaginn. Og stærðfræðipróf á þriðjudaginn svona stöðupróf. Held ég að ég verði bara látinn í hóp með átta ára krökkum eftir það. En geri mitt besta.
Gunnhildur er að standa sig eins og hetja í KISS búinn að fara í tvö próf og bara búinn að fá eina villu. Hún er klár stelpan svo byrjar hún í skólanum í byrjun september.
Danir eru að missa sig yfir allri þessari rigningu sem dunið hefur hér yfir. Og þegar að ég segi rigning þá er ég ekki að tala um svona auladropa eins og er heima. Heldur svona hardcore dropa sem eru á stærð við appelsínusteina. Það hefur ekki rignt svona mikið í ágúst í 44 ár. þetta er reyndar gott fyrir gróðurinn og sér maður grasið taka þvílíkan kipp að það þarf bara næstum því að fara að slá. Reyndar vona ég að það verði þurrt á laugardaginn því það er sumarhátíð hér á bakkanum. Og ef að það er eitthvað að marka hana Rakel þá verður ÞVÍLÍKT STUÐ.
Þetta byrjar allt með morgunmati og bjór síðan er einhver móttaka fyrir eldri íbúa og bjór. Svo verður hoppukastali og eittjhvað glens fyrir krakkana og bjór síðan verður snæddur kvöldverður með bjór. Því næst kemur hljómsveit og spilar fyrir æstan lýðin sem að verður með jú hvað haldi þið bjór. Þannig að það er óhætt að segja að það verði mikip glens og mikill bjór. Heimir verður einmitt hérna um helginna því hann er á milli íbúða og ætlar því að gista í höllinni okkar. Sem að verður skemmtileg tilbreyting að hafa einhvern sem að getur leikið við börnin.
En jæja bið að heilsa heim í ummmmmm góða veðrið.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Ohhh hljómar alveg meiriháttar, þessi Solbakken dagur. Endilega láta inn myndir eftir helgi :)
Gott að ykkur gengur vel í´skólanum, hvað annað???
Kossar og knús my homies.
Skrifa ummæli