sunnudagur, september 10, 2006

Helgin+Frítími=Öl

Helgin er búinn að vera góð tókum föstudaginn í að borða saman með Maríu, Heimi, Jóa, Rakel og börnum. Þetta varð bara hið skemmtilegasta kvöld sem að endaði ekki fyrr en þrír kassar af bjór voru búnir rétt fyrir 4. Svavar og systur hans komu og kíktu í smástund. Kom hann með sendingu frá Kristínu móðir sinni sem innihélt lakkrís fyrir krakkana og harðfisk fyrir strákinn. Ég vissi ekki að það væri harðfiskur í pokanum sem Svavar kom með. Fyrr en undir morgunn þegar að allir voru farnir og ég var að taka til. Þannig maður fékk sér smá nætursnarl ummmm harðfiskur með smjöri og kók til að skola því niður. Takk Takk Takk Kristín þetta var algert æði að fá harðfisk. Og eins og Megas sagði þótt þú gleymir Guði þá gleymir
guð ekki þér. Laugardagurinn fór í göngutúr kíktum á íbúðina sem að Svavar gistir í og fórum með Svavari,Heimi og Maríu hans Heimis. Að fá okkur borgara á Chilli Burgers og svo þegar að það var búið þá varð Svavar að fara og var ekki hægt að fá hann ofan að því það hefði verið gaman að geta talað aðeins við hann. Fyrst að hann var kominn alla leið til DK en hann mátti ekkert vera að því. Vonandi hefur hann tíma næst þegar að hann kemur til að heilsa uppá mann almennilega. Svo var bara kvöldið tekið rólega og glápti ég á Dumb and Dumerer. Klassísk mynd sem að maður má ekki gleyma. Sípan fer Sunnudagurinn í að læra læra og aftur læra. En þangð til einhvertíman seinna ég ætla að fara að borða harðfisk.

2 ummæli:

Herdis sagði...

jæja, þá er ég loksins búin að finna bloggið ykkar. búin að prófa allar útgáfur....gsfj, jfsg, fgjs....:) set linkinn í favorites, svo ég týni síðunni ekki aftur. en er engin myndasíða? kv, Herdís

Nafnlaus sagði...

Myndavélin etdilagdi einhver kjáni en tat er verid ad búa til nýja.