föstudagur, september 15, 2006

Vika

Nánast vika síðan að ég skrifaði hérna síðast. Ástæðan er nú bara sú að það er búið að vera rosalega gott veður í Danmörkinni og hef ég ekki nennt að sitja fyrir framan tölvuna að skrifa orð. Því maður situr við tölvu allan daginn í skólanum að læra á hin og þessi forrit. Sem að er bara gaman er með mestu áhersluna á forrit sem heitir AUTOCAD sem er teikniforrit. Og svona líka þetta flókið. En annars er allt gott að frétta af okkur, Gunnhildur byrjuð í KU og ég held að hana kvíði smá fyrir, því að þetta fer allt saman fram á dönsku. Og svo í ofanálag þá á hún að vera að þýða af dönsku yfir á ensku og öfugt. En hún klárar þetta með sóma ef ég þekki hana rétt. Jakob er byrjaður að kveðja fóstrurnar í skólanum á dönsku en svo biður maður hann um að tala á dönsku heima þá segir hann bara "ekki heima". Sem að er alveg rétt maður á ekki að vera að rugla hann í ríminu. Friðrika talar við krakkana í leikskólanum á dönsku og er þetta bara allt að koma hjá henni og veðja ég á að þetta verði bara alveg komið hjá henni um jólin. Sjálfur skil ég meira en ég tala þannig að þau geta talað við mig sem að ég er með í hóp. En það er ein stelpa sem talar ekki dönsku sem að er með mér í hóp þannig að þá tala ég ensku þegar ég er að tala við hana. En annrs lenti ég í góðum hóp sem að er mikilvægt því að við eigum að vera saman í heila önn. En ekki voru allir svona heppnir að lenda í góðum hóp því miður en svona er bara lífið annað hvort skin eða skúrir. Ég er kominn í barudvalg hér á kolegginu sem þýðir að ég ásamt fleirum sé um að halda barnum gangandi sem að ég held að verði gamann. Fengum slæmar fréttir í gær, við vorum að kaupa svefnsófa því Linda kvartaði svo mikið yfir að sofa á loftdýnunni. Og við vildum geta boðið gestum okkar uppá eitthvað betra. Þannig að það var farið í leiðangur og ekki uppí Ikea að þessu sinni heldur í einhverja sér rúmabúð. Og keyptur eitt stykki svefnsófi svona dýrari týpan. En þannig er að það þarf að smíða hann og bólstra og fáum við hann ekki fyrr en í 40 viku. Þannig Ásta hann verður ekki kominn á undan þér en við finnum út úr því. Hann kemur sem sagt á meðan tengdó er hérna.
Annars var farið í Fields í gær og ætluðum við að kaupa sitthvorar buxurnar en það var nú keypt heldur meira en það sem að er bara í lagi því að við kaupum okkur svo sjaldan föt. Bilka var tekin í baka leiðinni og bílinn fyltur af góssi. Um kvöldið komu Jói,Rakel og börn í Kjúlla í einhverri svaka sósu sem að Gunnhildur framreiddi af stakkri snilld.
Síðan voru krakkarnir svæfðir og Gunnhildur fór að læra og ég hlýddi henni yfir því að hún þarf að læra 15 setningar fyrir kiss málaskólann sem að hún er í. Núna ætla ég að fara að koma mér í skólann þó að kennerinn sem að ég á að vera með í dag sé veik og það er frí í allan dag. Þá má maður ekki slá slöku við því að við þurfum að skila outline proposal í dag til kúnnans okkar. en það er svona hvernig húsið á að líta út og vonandi verður það samþykkt af kúnnanum. En kúnnin er Thomas aðalkennarinn minn sem að er arkitekt að mennt og með þvílíka hæfileika. Reyndar er ég með tvo kennara sem að eru arkitektar og báðir alveg ótrúlega skemmtilegir og hæfir. Sem að er mjög gaman og mikilvægt að hafa menn sem að vita hvað þeir eru að tala um. Því þeir hafa báðir verið á vinnumarkaðinum sem iðnaðarmenn og arkitektar. Ekki eins og meirihutinn af arkitektunum heima sem að hafa aldrei snert verkfæri. Og eru það oftast að mínu mati dýrustu arkitektar sem að maður getur fengið. Því þeir vita ekki hvernig að nagli virkar og þar að leiðandi halda að það sé hægt að negla í vinkil á bakvið skáp með 10cm rými.

Barráttukveðjur heim í rigninguna og í lokal 23 þar sem að er einhver flensa á ferðinni.(Eiríkur Steinn er veikur og bið ég ykkur um að senda honum barráttukveðjur hér. Því þetta er einn sem að má ekki vera að því að vera veikur því hann er að klára matsterinn í byggingaverkfræði)

Hilsen Siggi.
E.S Muna að skilja eftir comment.

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Kæra fjölskylda.
Gott að ykkur gengur öllum svona vel í því sem þið eruð að gera. Hlakka til að geta vonandi komið í heimsókn á næsta ári, fyrir næsta sumar vonandi. Gefið ykkur stórt knús frá okkur fjölskyldunni.
Mbkv.Ásta Lín og fam.
Ps.eruð þið búin að ná að skoða myndasíðuna hans Magnúsar Geirs?

Nafnlaus sagði...

hæ krúttin mín ;)
bara að skella inn commenti, maður þorir ekki öðru!! gaman að sjá hvað gengur vel hjá ykkur.. maður verður pínu - bara pínu - öfundsjúkur ;) allavega bið ég að heilsa öllum, stórt knús til krakkanna og líka til frænda míns!!
Ástar- og saknaðarkveðjur NMJ

Nafnlaus sagði...

Gaman að heyra að allt sé komið á fúll sving. Alltaf gaman að lesa bloggið.

Knus og kram, p&p.
María og familí

Nafnlaus sagði...

hér fáiði comment fá miðbæjarpakkinu. Allir hressir og kátir og aman að heyra að allt gengur vel hjá ykkur. Sjáumst á msn hjónakorn :)

Reg og guttarnir

Nafnlaus sagði...

hæhæ. gaman að sjá hvað vel gengur á öllum vígstöðvum. Hér með vottast að ég kíki daglega inn þótt ég skilji ekki eftir comment. Farðu svo að laga myndavélina og henda inn myndum áður en ég gleymi hvernig þið lítið út.... !!
Kveðja
Hanna panna og junior.