Jæja þá eru fyrstu dagarnir í skólanum hjá mér búnir. Þetta var gríðalega erfitt að vera þarna fyrsta daginn og sætta sig bara við það að maður er heimski útlendingurinn. Að geta ekki sagt sína meiningu því maður er ekki með málið er bara gríðalega erftitt. Og ég held að það geti enginn ýmindað sér þetta nema að hafa reynt þetta. Eins og Vigdís sagði "þú verður bara að sætta þig við þetta þú verður heimski útlendingurinn í alveg eina til tvær annir". Sem að er rétt þó svo að ég sé með meiri reynslu af byggingavinnu en margir þarna þá getur maður ekki sagt sína meiningu. Fólkið sem að ég er með í bekk samanstendur af t.d íþróttakennurum,leiðsögumanni of einum leigubílstjóra. Og þetta fólk á það sameiginlegt að vita varla hvernig hamar lítur út. En ekki miskilja mig það eru líka margir múrarar og smiðir þarna sem að eru flinkir. Ég lenti í góðum hóp í dag sem að ég er gríðalega ánægður með. Því eftir tvo daga í fyrilestri, námstækni og leikjum sem byrja allir á ég heiti. Þá fengum við verkefni í dag að smíða brú reyndar bara svona líkan en það á að vera 900mm löng og minnst 120mm á breidd. Og skal hún halda 3 kílóum, þetta hljómar kannski ekki erfit en við fáum bara x margar spýtur. Sem að eru álíka þykkar og íspinnatimbur. Þið vitið spýtan á ísnum sem að þið eruð alltaf að borða. Einnig fáum við lím UHU meira að segja og smá tvinna. Brúin okkar er alveg að verða tilbúin en við höfum daginn á morgun líka til að klára hana svo verður hún/þær prófaðar á föstudaginn.
Gunnhildur er að byrja í KISS á mánudaginn klukkan 7:45 takk fyrir. Og hlakkar hana gríðalega mikið til. Krakkarnir eru bara að standa sig vel í leikskólanum og Friðrika byrjuð að tala smá dönsku. Jakob er meira í því að skjóta danina en að tala við þá.
Gunnar Bjarki og fjölskylda eru búin að ver hérna á Sólbakkanum í einhverri af þessum lúxusíbúðum. Því miður náði ég ekki hitta þau nægilega nógu oft. Þó náði ég einu góðu djammi með Gunnari. Þau fóru í dag og þá var ég í skólanum og náði því ekki að kveðja þau.
Það var reyndar lítill fugl sem hvíslaði því að mér að þau kæmu aftur á þessu ári. Ég bíða þá bara og fæ að kveðja þau tvöfalt þegar að þau fara þá.
Einnig er besti vinur hans Jakobs hann Arnór farinn til Grindavíkur. Sagan á götunni er sú að pabbi hans hafi ekki þorað að vera lengur eftir að honum tókst að hræða úr undirrituðum líftóruna. Hann var hræddu við hefnd en þeir sem þekkja mig vel vita að ég er ekkert í þeim geiranum að stríða fólki.
Og hvað eru mörg S í því
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
hej hej það eru nú sumir farnir að sakna jakobs líka hehe :) og mundu að það er lífsnauðsynlegt að hefna sín og þar sem að ég er næstum saklaus og í öðru landi er ágætt að hefna sín á kvikindinu honum jóa :) við munum örugglega fylgjast með hérna svo verið dugleg að blogga :)kveðja úr rigningunni í Grindó city.
Skrifa ummæli