Þá er fyrst skóla dagurinn hjá mér (sas) liðin þetta var meira svona fyrirlestur og kynning á skólanum. Þetta voru tveggja tíma ræðuhöld sem að ég skildo svona um 15 mínútur. Allavega nægilega mikið skildi ég og veit að ég á að mæta í skólann á mánudaginn klukkan 9. Það eru alveg ótrúlega margir að fara í byggingafræði eða um 150 manns og af þeim eru 2 íslenskir karlmenn. Sá ekki hinn íslendinginn enda skiptir það ekki máli því ég er að fara að læra á dönsku. Og ég þekki líka alveg nóg af íslendingum fyrsti skóladagurinn er búinn og bara 7 annir eftir.
Hitti Hildi,Kidda,Sibba,Catrinu,Fanndísi og Iðunni í gær . Ég og Friðrika fórum í Tivoli í gær í boði
syskyna minna. Og var alveg æði Friðrika er svo mikill adrenalínfíkill að það er ekkert eðlilegt að 4 ára gamalt barn vilji fara í öll tækini. Og þá meina ég ÖLL tækinn en þar sem að það er svo mikið af ferðamönnum hérna þá eru raðirnar ekki að skapi stressaðs íslendings. Mæli frekar með að fólk fari á Bakken því þar eru raðirnar alveg helmingi styttri. Jæja það er ekkert hægt að koma með góða útskýringu á því að ég sé að hanga í tölvuni þegar að það er 25 stiga hiti og rísandi. Þannig nú er mál að hætta
Hilsen
Siggi Háskólanemi (bara gamann að skrifa þetta)
föstudagur, ágúst 04, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
en hvað með Gunnhildi? er hún komin með jobb? Mikið ofsalega væri gaman að hitta á hana á msn :)
Er Gunnhildur líka byrjuð í KISS? Hlakka til að heyra hvernig gengur.
Skrifa ummæli