Dagurinn byrjaði á því að ég (sas) hjólaði í skólann í grenjandi rigningu og blotnaði ég svona á skalanum 1-10 þá fæ ég 8. Það er nú bara lítil fórn miða við að ég þornaði aftur á tveim tímum í skólanum. Líka það skipti ekki máli hvað ég var blautur því það voru allir blautir í bekknum.
Ég lenti í því í dag að lesa eftirfarandi texta fyrir framan ca 100 mans. "Gruppen opdelerarbejdsopgaver og går i gang med at bygge vanger og limtræsbuer. sætvist bliver vanger og buer sammen, derefter fæstnes træstiver. Wirer bliver monteret fra bue til vange på begge sider. 6 sæt af diagonal tråd sættes i bund for at afstrining". Þar sem ég ætla ekki að þýða þetta þá bara mæli ég með að þið náið í orðabók.
Þetta er semsagt útskýringar á uppbyggingu brúarinnar okkar sem að stóð sig með prýði og brotnaði ekki. En að lesa svona fyrir framan 100 mans er ekki lítið erfitt sérstaklega þegar að maður er ekkert sérstaklega sleipur í dönskunnni. Þetta kemur allt og áður en ég veit að verð ég byrjaður að blóta á dönsku.
En jæja þá er best að fara að taka þátt í heimilisstörfunum áður en sú gamla verður reið.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli