Þetta er nú búinn að vera meiri helgin grill,bjór,hlátur,Paradís og fullt af skemmtilegu fólki. Hvað þarf góð helgi að hafa meir til bruns að bera. Svar EKKERT
Á föstudaginn fórum við útí Føtes og ætluðum sð kaupa einn pulsupakka en enduðum með að kaupa fimm poka af hinu og þessu. Sigginn eldaði spaghettíréttinn hennar Hilda á föstudaginn og var hann borðaður upp til agna. Seinnipartinn komu Rakel og Jói í heimsókn og smökkuðum við smá bjór,spiluðum og kjöftuðum sem að var hrikalega gamann. Á laugardaginn var maður lengi að koma sér í gang en það hófst allt saman og fórum við í túr niðrá Paradís. Sem að klikkaði nátturulega ekki. Því að þessi búlla er besta ísbúllan í DK. Um kvöldið var svo grillað ribs og borðuðum við heima hjá Jóa og co. Sem er ekki að spyrja að það var snildin ein. Og fyrir ykkur sem að eru ekki búin að smakka þessi ribs frá Jensens þá eru þið pínu óheppinn því þau eru bara góð. Svo fer sunnudagurinn bara í leti því við þurfum að vakna frekar snemma í fyrramálið. Því Gunnhildur er að byrja í KISS og þarf hún að vera mætt 7:45. Þannig að Sigginn fórnar sér og fer með krakkana í leikskólan í fyrramálið. Jæja þanngað til næst þá segjum við bless héðan úr rigningunni
E.S
Hún Laila á afmæli í dag og veit ég að hún les alltaf þetta blogg. Við viljum óska henni til hamingju með afmælið.
Hún á afmæli í dag
Hún á afmæli í dag
Hún á afmæli hún Laila
Hún á afmæli í dag
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli