miðvikudagur, ágúst 16, 2006

ókunnugi maður

Skrýtið að koma heim og sjá einhvern vera að drekka bjór við stofuborðið. Og ekkert hvaða bjór sem er heldur bjórinn sem að ég skildi eftir kvöldinu áður. Gunnhildur ekki heima mér fannst þetta eitthvað skrýtið og spurði til nafns. Bæði á dönsku og ensku ég fékk ekkert svar en þó heyrði ég smá uml/suð í honum. Hefði getað verið hún líka var ekki viss en ég held að þetta hafi verið hann. Ég er byrjaður að ókyrrast og fer yfir grundvallaratriðin í karate í huganum. Sem ég lærði einu sinni af einni kúng-fú mynd. Hef reyndar aldrei notað þessi brögð sem að ég kann. En er viss um að ég geti yfirbugað þó nokkra með þessu. Allavega aftur að þessum manni ég ákveð að fara inn í eldhús að ná mér í bjór. Ég hætti mér nær og nær þangað til að ég er sestur á móti honum. Hann horfir á mig og reynir að seilast ofaní Carlsbergdósina, en ég veit að hann er ekki búinn með sína. Ég er alveg að fá nóg af því að geta ekki drukkið minn eigin bjór í friði fyrir ágangi frá einhverjum ókunnugum manni. Ég stend upp með bjórdósina í hendinni labba inn í eldhús næ í viskustykki opna gluggan og ýti geitungnum út. Djöfull þoli ég ekki geitunga get ekki beðið eftir því að það kemur frost og þeir frjósa í hel.

Engin ummæli: