mánudagur, júlí 24, 2006

Veikindi á Sólbakken

Jakob er veikur búin að vera með gríðarlegan hita í alla nótt en virðist vera að braggast í þessum skrifuðu orðum. Og vonandi verður hann orðin stálsleginn á morgun. Því það er hundleiðinlegt að hanga inni í svona fínu veðri. Friðriku vantar tilfiningalega að komast á leikskóla hún er orðin leið á að þurfa alltaf að leika sér ein á daginn meðan allir eru í leikskólanum. Hún er voða dugleg að eignast vini hérna. Jakob er líka duglegur að tala við ókunnuga og skiptir ekki máli á hvaða aldri þeir eru. Það er nóg af krökkum hérna á svipuðu reki og hann en hann vill frekar vera einn með sverð eða byssu. Barnið er sjúkt í vopn ef að hann sér einhverrskonar vopn hérna í garðinum þá er hann komin með það. Svo nú í morgunn tók hann krossin sem að Gunnhildur á sem er svona ca 15 cm. Og var að nota hann sen sverð þá sagði ég honum að þetta væri Jesús. þá kom Friðrika og sagði já er þetta svona Jesús sverð.


Það styttast óðum dagarnir sem að maður hefur í fríi hérna því skólinn byrjar 3. ágúst. Blendnar tilfiningar eru gagnvart því að byrja mig kvíður fyrir en er jafnframt spenntur reyndar meira spenntur. Maður hefur tvær vikur til að drekka bjór og svo verður það að stoppa eða allavega minka. Það er bara þannig að ef að bjór er ódýrari en gos þá nátturulega drekkur maður bjór ekki rétt. Reyndar hef ég lest en magamálið hefur aukist það er nú lítil fórn fyrir góðan bjór.

Engin ummæli: