Þegar að fólk kemur til köben þá finnst það þurfa að fara á nokkra staði s.s Tivoli, Bakken,Dýragarðinn,Strikið og H&M. Og eftir þessa staði þá er meðal íslendingurinn bara sáttur og gæti þessvegna bara farið heim. En það er einn staður sem að er alveg möst að fara á og fáir vita af. Þetta er staður sem að nær að kítla bragðlaukana og jafnframt blekkt í manni sjónina vegna gæða. Þarna getur maður labbað inn og fengið ferskar vörur í tugavís og jafnframt finnur maður það við fyrsta bitan. Slagorðið einu sinni smakkað og þú getur ekki hætt á þarna við.
Þetta er Paradís besta ísbúðin hérna megin við Heiðmörk. Þarna er ísinn aldrei eldri en 24ja tíma gamall. Og er hægt að sjá hvenar hvaða ís er búin til á heimasíðunni hjá þeim. Þetta er snildar búð sem að allir ætu að heimsækja hvort sem þeir stoppa í viku eða þrjá klukkutíma. Einnig ef að fólk þarf leiðsögumenn þá veit ég um tvo sem að gætu tekið það að sér. Þetta er fólk með gríðalega reynslu af ísnum frá Paradís þau hafa eytt mörgum klukkutímum þarna. kunnugir segja mér að þau fái póstinn sinn þangað. Þetta eru Sólbakkabúar en þó ekki ég og Gunnhildur. Þessir leiðsögumenn vilja fá að halda nafnleynd að svo stöddu vegna gríðaleg mikillar eftirspurnar. En ég get gefið ykkur fyrstu stafina E,V og S . Fengum okkur einmitt ís í gær frá Paradís og ég get svo svarið fyrir það að þegar að ég var að borða jarðaberjaísinn þá fannst mér eins og ég væri að borða jarðaber.
miðvikudagur, júlí 26, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
hvenær fær maðursvo að sjá myndir af nýja heimilinu ??
bið að heilsa gunsinu.
Já talið bara við mig ;o)
V
Skrifa ummæli