Vá hvað ég er mikil óheppniskall var að eyðileggja nýju digital myndavélina okkar. Var að taka myndir af Jakob uppí einhverri gluggasyllu þegar að hann ákveður að stökkva til mín og ég missti vélina sem að er splunkuný beint á linsuna. Ömurlegt nenni ekki að tala um það því að þetta var besta myndavél sem að ég hef átt Kodak v550. En svona er það bara slysin gera ekki boð á undan sér. En það er allt gott að frétt héðan Gunnhildur er búinn að skrá sig í KISS sem að er frábært og byrjar 14 ágúst. Hún er á morgun námskeiðunum sem að byrja klukkan 8:30 þeir segja að þetta sé einsog að vera í hernum svo stíft er námið. Og gert er ráð fyrir að það fari 20 tímar í heimanám á viku heima.
Hæ Hæ
miðvikudagur, júlí 26, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli