sunnudagur, júlí 23, 2006

Þankagangur

Þótt þú gleymir guði þá gleymir guð ekki þér. Þetta er allt sem segja þarf um það.
En héðan er allt gott að frétta við erum í heilögustríði við maura sem að halda að þeir eigi heima hjá okkur. Þeir hafa búið á svölunum í sátt og samlyndi við okkur en nú finnst mér þeir vera að færa sig heldur betur uppá skaftið. Og koma nú inn því það er smá glufa undir svalarhurðinni. Þnnig nú er málið að fara í MATAS og ná í einhverskonar eitur eða gildrur.

Mamma og Siggi eru að leggja af stað í sinn árlega Evróputúr á mánudaginn. Þannig að við sjáum þau í lok næstu viku. En einnig ætlar Linda Rós yngri að koma þann 31. og er gríðaleg spenna yfir því hér á bæ. Svo ætlar Hildur að kíkja núna einhvertíman í kringum Verslunarmannahelgina. Á reyndar eftir að fá nánari tímasetnigu á það. Kæmi mér samt ekkert á óvart ef að hún mundi hringja bjöllunni hjá mér og bara kominn. Það er bara Hildur tekur ákvarðanir mjög snögglega og framkvæmir svo strax. Vildi að ég hefði kannski smá af þeim eiginleika.

Allavega þá viljum við óska Alexander og Línu til lukku með að vera kominn í fullorðinnamannatölu því þau eru búin að gifta sig. Einnig voru Herdís og Ulf að gifta sig og fá þau hinar bestu óskir héðan frá DK.

Einnig vill ég koma á framfæri að þeir sem að hafa ekki verið að fá myndir frá okkur að senda mér póstfang sitt. siggiandri@gmail.com

Engin ummæli: